Heimili eru eins mismunandi og þau eru mörg, og þótt margir kunni að meta stílhreina og fágaða muni eru aðrir sem vilja aðeins hressilegri og glaðlegri hönnunarvöru. Litadýrðin er kærkomin, sérstaklega hér á landi þar sem kalt og dimmt er stærstan hluta ársins. Þá er ekki amalegt að fá smágleði í hjartað með sérdeilis glaðlegum skrautmunum.
Isaac Nichols stofnaði keramikstúdíóið Grouppartner árið 2012.
Nichols segir að verkin endurspegli jákvæða líkamsímynd, kynferði og ást á plöntum.Pottarnir fást í vefversluninni lauuf.com.
Eineggja tviburasysturnar Liv og Dom framleiða hressilega, og stundum dálítið dónalega muni.
Dónalegur reykelsisstandur frá Liv and Dom.
Kleinuhringir frá Tinnu Royal. Tinna er með litríkan smekk og (s)ætir hlutir eru áberandi í listsköpun hennar.
Hugmyndin að eyrnabollunum kviknaði þegar sonur leirlistakonunnar Svöfu Bjargar Einarsdóttur kvartaði undan því að vera með ljót eyru. Bollarnir fást í Kaolin keramikgallerí.