Við Sólvallagötu hafa Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögmaður og Vigdís Margrétardóttir Jónsdóttir sálfræðingur búið sér fallegt heimili. Nú er íbúðin komin á sölu.
Íbúðin er 107 fm að stærð og stendur í húsi sem byggt var 1931. Eldhúsið er með nýlegri eikar-innréttingu og er marmaraplata á borðum. Eins og sést á myndunum er hún látin ná upp á vegginn sem kemur vel út. Baðherbergið er flísalagt með marmaraflísum sem skapar huggulega stemningu.
Eins og sjá má á myndunum hafa Friðrik og Vigdís gott auga fyrir því hvernig best er að gera fallegt í kringum sig.