Eftir því sem varð auðveldara að deila myndum af heimilinu sínu á Facebook og Instagram virðist áhugi fólks á heimilum og hönnun sjaldan hafa verið meiri. Netið er stútfullt af myndum af fallegum og útpældum heimilum. Inn á milli leynast þó myndir af heimilum þar sem eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis í hönnuninni.
Instagram-síðan Please Hate These Things birtir myndir af skrítnum og illa hugsuðum hlutum í innanhúshönnun. Á meðan sumar myndir á síðunni sýna tískubólur sem eru dottnar úr tísku eru aðrar myndir sem sýna misheppnaðar lausnir í innanhúshönnun.
Fólk er reyndar misjafnt og kannski hafa einhverjir smekk fyrir gullfiskasýningu á klósettinu og öskrandi arineld.