Eldhúsið og borðstofan í mestu uppáhaldi

Klara Thorarensen er einn af eigendum Heimahússins.
Klara Thorarensen er einn af eigendum Heimahússins. Ljósmynd/Óttar

Klara Thorarensen er einn af eigendum Heimahússins. Klara starfaði sem fyrirsæta um árabil áður en hún fór út í atvinnurekstur. Hún er gift Óttari Guðnasyni og saman eiga þau börnin Dag, Helen Málfríði og Kristján. 

Klara leitast við að vera heiðarleg í lífinu og að koma vel fram við aðra. Njóta lífsins og lifa í núinu.

Hvað heillar þig mest við innanhússhönnun?

„Fjölbreytileiki. Mér finnst ekki einn stíll endilega fallegastur. Ég hef gaman af þegar fólk fer sínar eigin leiðir og setur saman marga ólíka hluti sem búa til flotta heild.“

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í húsinu?

„Eldhúsið og borðstofan þar sem fjölskyldan kemur saman.“

Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið?

„Ég var að koma frá Mexíkó og keypti þar mjög fallegt handunnið teppi.“

Hvaða ilmvatn notar þú?

„Ég er með 3 ilmvötn í gangi núna. Ég nota Brown Sugar frá Fresh þegar ég vil eitthvað létt, Gypsy water frá Byredo og The Noir 2 frá Le Labo, spari.“

Brown Sugar ilmvatnið er himnesk blanda af sykur og sítrus.
Brown Sugar ilmvatnið er himnesk blanda af sykur og sítrus. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Hvernig sængurfatnað notar þú?

„Mig vantar reyndar að endurnýja öll rúmfötin hjá mér en það sem ég keypti síðast og elska eru Gant-rúmföt frá Gegnum glerið. Hef aldrei verið með hvít sængurföt svo að það er á óskalistanum ásamt hörsængurfötum sem fást í Merci í París.“

Merci búðin í Frakklandi er einstök.
Merci búðin í Frakklandi er einstök. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn?

„Mér finnst margt fallegt sem Benn og Pia, eigendur PB Home, eru að gera í húsgögnum og gjafavöru. Eins er ég mjög hrifin af því sem Marianne Brandi er að gera hjá Day Home. Síðan er hönnunarteymið hjá Pure Furniture að gera frábæra hluti.“

Vörur frá PB Home.
Vörur frá PB Home. Ljósmynd/PB Home

Hvað gefur lífinu gildi?

„Börnin, fjölskyldan, vinirnir, vinnan og svo er ég þakklát á hverjum degi fyrir að vera heilsuhraust og geta hreyft mig.“

Hvar kjarnar þú þig heima?

„Ég vakna alltaf hálftíma á undan öllum heima og finnst það vera mín stund til að undirbúa mig fyrir daginn.“

Hver er uppáhaldsborgin þín?

„New York.“

New York er uppáhaldsborgin hennar Klöru.
New York er uppáhaldsborgin hennar Klöru. Ljósmynd/Thinkstockphotos

Hvað heillar þig mest í þessu lífi?

„Örugglega allt sem yngsta barnið gerir og segir. Umhverfið, náttúran, allir fallegu staðirnir sem ég hef ferðast til og allt það sem er á óskalistanum og ég á eftir að gera.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál