Við Hlégerði í Kópavogi stendur krúttlegt 211 fm einbýli. Húsið er nýlega tekið í gegn á smekklegan og látlausan hátt.
Eldhúsið er nýtt en það er með dökkbæsaðri eik að neðan en hvítt sprautulakkað að ofan eða þar að segja neðri skápar eru dökkir og efri skápar hvítir. Innréttingin er sérsmíðuð hjá HEGG með fallegri hvítri steinborðplötu. Úr eldhúsinu er opið inn í borðstofu þar sem búið er að koma fyrir huggulegu borðstofuborði.
Krúttlega er raðað upp í öll herbergi og er stíllinn hlýlegur.