Mandy Moore er búin að gera upp hús sitt í Los Angeles sem hún keypti með unnusta sínum Taylor Goldsmith. Hún opnaði dyrnar að nýuppgerðu heimili sínu fyrir Architectural Digest.
Áður en hún flutti í nýja húsið hafði hún búið í sama húsinu í 15 ár en það hús keypti hún 18 ára eftir að hafa leikið í fyrsta skipti aðalhlutverk í bíómynd. Nýja húsið markar nýjan kafla í lífi This is Us-stjörnunnar að hennar mati en þar ætlar hún að búa sem fullorðin kona.
Moore fékk fagfólk með sér í lið þegar kom að því að gera upp húsið og sá innanhúshönnuðurinn Sarah Sherman Samuel um að gera húsið að því heimili sem það er í dag. Húsið er búið einstaklega fallegum húsgögnum og minnir margt á sjötta áratug síðustu aldar en húsið var einmitt byggt þá.
Fleiri myndir má sjá í greininni á vef Architectural Digest.