Leigðu engan venjulegan sumarbústað

Beyoncé og Jay-Z sætta sig ekki við neitt nema fyrsta …
Beyoncé og Jay-Z sætta sig ekki við neitt nema fyrsta flokks lúxus. AFP

Stjörnurnar láta enga kofa duga þegar þær fara í sumarfrí eins og sést á húsinu sem tónlistarfólkið Beyoncé og Jay-Z tóku á leigu sumarið 2012. Húsið er nú komið á sölu og kostar hvorki meira né minna en tæpar 50 milljónir dollara eða rúma fimm milljárða. 

New York Post greinir frá því að hjónin hafi borgað 400.000 dollara fyrir mánuð í húsinu þegar þau dvöldu þar eða rúmar 42 milljónir. Húsið er staðsett í Hamptons en ofurhjónin fjárfestu sjálf í húsi á svæðinu í fyrra. 

Það fór líklega ekki illa fyrir þeim Beyoncé og Jay-Z þegar þau dvöldu í húsinu enda ekki aðeins dýrt heldur líka flott. Í húsinu er meðal annars að finna tíu svefnherbergi og 17 baðherbergi,  sundlaugar, líkamsrækt, spa, bíósal, hjólabrettapall og keiluhöll. 

ljósmynd/bespokerealestate.com
ljósmynd/bespokerealestate.com
ljósmynd/bespokerealestate.com
ljósmynd/bespokerealestate.com
ljósmynd/bespokerealestate.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál