Hver vill ekki lifa hinum minimalíska lífstíl þar sem aldrei er neitt drasl og allt slétt og fínt? Það getur þó reynst þrautinni þyngri að skipuleggja sig og losa sig við allt draslið. Hér fyrir neðan eru góð ráð til þess að verða skipulagðari.
Hafðu fimm hrúgur
Þegar þú byrjar að laga til og endurskipuleggja, búðu til fimm hrúgur. Eina fyrir hluti sem þú ætlar að setja á annan stað í húsinu, eina fyrir hluti og föt sem þú ætlar að gefa í Rauða krossinn, eina fyrir hluti sem þú ætlar að gefa einhverjum ákveðnum, eina hrúgu fyrir það sem þú ætlar að henda og sú síðasta er fyrir hlutina sem þú ætlar að „leggja í bleyti.“ Í „leggja í bleyti“ hrúguna seturðu hluti og föt sem þú ert ekki alveg viss um. Síðan seturðu hrúguna í kassa og merkir dagsetningu eftir 6 eða 12 mánuði. Ef þú notar ekkert úr kassanum á þessum tíma, þá skaltu henda því eða gefa það sem er í kassanum.
Settu þér reglur
Settu þér reglur um það sem þú ætlar að losa þig við. Sem dæmi geturðu ákveðið að henda/gefa öll föt sem eru í ákveðinni stærð, eru blettótt eða þarf að laga.
Fjarlægðu draslið, ekki búa til meira geymslupláss
Fólk sem ætlar að fara skipuleggja sig á það til að hlaupa út í búð að kaupa plastkassa, körfur og snaga. Þessir kassar og körfur eiga það svo til að bæta aðeins við draslið heima hjá þér. Þeir passa kannski ekki alveg og þú kemur dótinu fyrir í þeim sem þú ætlaðir að setja í þá. Það er því skynsamlegra að byrja á að fara í gegnum draslið og athuga fyrir fram hversu mikið af kössum og körfum þú þarft.
Hentu öllum óþarfa pappírum
Stór hluti af þeim pappír sem þú átt er alveg ónauðsynlegur. Það er staðreynd að þú þarft ekki að eiga leiðbeiningabæklinginn sem fylgdi með ísskápnum sem þú hentir í fyrra. Flestallt er aðgengilegt á netinu, leiðbeiningabæklingar og bankayfirlit þannig að ef þú vilt losna við drasl er pappírinn góður staður til að byrja á. Svo er bara að muna að setja allan pappír í endurvinnslugáma.
Seldu það sem þú hefur alltaf ætlað að selja
Ef þú átt slatta af fötum eða dóti sem þú ætlaðir alltaf að selja á Facebook, gerðu það! Ekki geyma þetta dót lengur. Ef þú nennir ekki að selja það, gefðu það. Þú munt skapa heilmikið pláss.
Hættu að fresta hlutunum
Gerðu litlu hlutina strax í stað þess að láta draslið safnast upp. Gakktu frá eftir þig, búðu um rúmið, vaskaðu upp og gakktu frá þvottinum strax. Þú getur til dæmis sett þér reglu að ef það tekur minna en tvær mínútur að gera eitthvað verður þú að gera það strax.
Snúðu öllum herðatrjánum við
Snúðu öllum herðatrjánum öfugt, síðan þegar þú notar flík, þværð hana og setur hana aftur inn í skáp, snýrðu herðatrénu rétt. Eftir ár sérðu svart á hvítu hvaða flíkur þú hefur í raun og veru notað.
Það er í lagi að eiga draslskúffu
Á mörgum heimilum eru svokallaðar draslskúffur þar sem hlutir sem eiga sér engan sérstakan stað eiga heima. Það er í lagi svo lengi sem þú veist hvað er í skúffunni.
Merktu gamlar myndir
Ef þú átt út prentaðar ljósmyndir, merktu hverjir eru á henni og hvenær hún var tekin. Það gerir fjölskyldu þinni og ættingjum auðveldara fyrir í framtíðinni.