Einfaldur stíll og smekklegheit einkenna þessa 142 fm íbúð sem staðsett er í 101. Ekkert óþarfa prjál er í íbúðinni og á hver hlutur sinn stað.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og kom Steinþór Kára arkitekt að þeim breytingum. Eldhúsið er til dæmis ákaflega fallegt og lekkert. Innréttingin með fulningahurðum og með granítborðplötu. Fyrir ofan er ein hilla og falleg ljós. Takið eftir að loftið er málað í nákvæmlega sama lit og veggirnir sem skapar fallega heildarmynd.