Best þrifna íbúð landsins á sölu

Sólrún Diego.
Sólrún Diego.

Sólrún Diego hreingerningarsnappari og metsölubókarhöfundur þarf að flytja, því íbúð sem hún og kærasti hennar hafa leigt er komin á sölu. Um er að ræða best þrifnu íbúð landsins. 

Íslenskir snapchat-notendur hafa fylgst náið með þrifum á þessari 98 fm íbúð í Kópavogi. Íbúðin er ákaflega falleg og heillandi og ljóst er að sá sem mun kaupa íbúðina mun ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að ryk leynist úti í hornum eða að óvæntir blettir komi í ljós. Sólrún hefur verið með tuskuna á lofti og þrifið allt sem hægt er að þrífa. 

Í íbúðinni eru fallegar innréttingar og er íbúðin öll nýmáluð en litirnir voru sérvaldir af Sólrúnu. 

Af fasteignavef mbl.is: Þorrasalir 17

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál