Leikkonan Julia Roberts á fallegt hús í Malibu í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hún hefur ákveðið að leigja út. Roberts keypti húsið í fyrra en ætlar greinilega ekki að búa í því. Samkvæmt fasteignavefnum Trulia kostar mánuður í húsinu 10.500 Bandaríkjadali eða rúma 1,1 milljón íslenskra króna.
Búið er að taka húsið, sem er blátt á litinn og minnir á bandarískan búgarð, mikið í gegn. Gömul eldhúsinnrétting fær þó að njóta sín í eldhúsinu.
Þrátt fyrir að Julia Roberts sé ein launahæsta leikkona í heimi er líklega eins baðherbergi í húsinu hennar og hjá mörgum öðrum venjulegum Íslendingum, enda klassísk IKEA-innrétting á baðherbergjunum.