Heimilið verður aldrei fullkomið

Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður.
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Hvernig geta netið og samfélagsmiðlarnir kennt okkur meira um okkur sjálf og hvernig við viljum hafa hlutina heima? Látið okkur staldra við og meta umhverfi okkar á jákvæðan hátt? Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður skrifar um gildi þess að vera vandlátur á hvað maður skoðar og að sleppa takinu á hugmyndinni um fullkomið heimili.

Við eigum að vera okkar eigin ritstjórar þegar kemur að því að velja hvað við skoðum og meðtökum á netinu og samfélagsmiðlunum. Velja og hafna, henda því út sem hentar okkur ekki, henda því út sem lætur okkur ekki líða vel, skoða það sem er áhugavert og veitir okkur innblástur. Sem sagt klæðskerasníða það sem við tökum inn. Hér er ég að tala um netið og innanhússhönnun þótt þetta megi heimfæra á margt annað.

Það er gríðarlegur áhugi á innanhússhönnun og því að vinna með útlit og yfirbragð heimilisins. Það er líka ótrúlega auðvelt að sökkva sér í að skoða einhvern veginn allt, og líklega ekkert, án þess jafnvel að taka eftir því hvað verið var að skoða. Ég hef skrifað um þetta áður en finnst mikilvægt að nefna þetta á þeim forsendum að með því að vera vandlátur á það sem maður skoðar þá fær maður svo miklu meira út úr þeim tíma sem eytt er. Það gæti nefnilega komið á daginn, að með því að rýna í og fletta til dæmis í gegnum Pinterest-möppurnar sem vandlega hefur verið pinnað í, megi lesa meira um sjálfan sig en maður gerir sér grein fyrir.

Því er ekki að neita að sem innanhússhönnuður þá skynjar maður ákveðna pressu hjá mörgum þegar kemur að því að hafa heimilið sitt flott / fallegt / spennandi / á ákveðinn hátt. Það er pressa fólgin í endalausum samanburði, gildum sem ómögulegt er að ná og fullkomnun sem flæðir í gegnum huga okkar og okkur finnst að eigi að eiga við um okkur líka þegar kemur að þessum miðlum. Pressan leiðir að mínu mati til þess að gleðin tapast og óöryggi skapast í því að vinna með heimilið sitt. Úr getur orðið ákveðin keppni í að gera barnaherbergið svona og stofuna hinsegin. En hverju er þá verið að gleyma? Keppni í innanhússhönnun með eigið heimili getur ekki skilað sér í persónulegu umhverfi. Persónulegur stíll er víðs fjarri. Hann gleymist algjörlega.

Að fylgja öllum sem allir hinir fylgja og meira til gerir fátt fyrir okkur. Þá er verið að mata okkur á stíl sem er kannski á endanum alls ekki okkar. Margt af því sem er verið að skoða á að vera nýtt, betra, meira, vinsælt. Auðvitað er líka gaman að fylgjast með en við þurfum að staldra við og gera okkur grein fyrir því sem er núna og hversu gott það getur verið. Ekki rjúka til og fylgja einhverju allt öðru en okkar innsæi. Um það snýst eigin stíll. Fyrir hvað við stöndum og erum. Hvernig við hugsum.

Hvernig er draumaheimilið?

Á námskeiðunum mínum sem ég held í innanhússhönnun, fer ég yfir mikilvægi þess að vinna vel að hugmynd svo hún geti orðið að veruleika, eða eins og við óskuðum okkur. Hversu stórt eða lítið sem verkið er sem vinna á að, þá skulum við eyða sem mestum mögulegum tíma í góðan undirbúning svo framkvæmdin taki sem skemmstan tíma. Við hugum að öllum þörfum sem herbergið / íbúðin / húsið sem verið er að vinna með, þarf að bera. Við gerum kostnaðaráætlun. Þá skulum við sleppa allri þarfagreiningu og gefa huganum frelsi. Frelsi til innblásturs. Frelsi til að fylla inn á lokaða möppu á Pinterest (tek Pinterest sem dæmi vegna vinsælda) sem heitir einfaldlega: Draumaheimilið. Þar skulum við geyma allt sem gleður okkur og viðkemur hugsuninni um heimilið okkar sem okkar eigin heim. Eitthvað sem okkur hefur alltaf dreymt um, þótt heillandi, spennandi. Án þess að hafa einhver markmið og viðmið í huga. Við flettum síðan endalaust í gegnum þessa möppu um tíma, hendum út og bætum við. Vinnum með hana án allrar pressu, því fyrir okkur standa þessar myndir fyrir hugtakið „heima“. En athugið að þessa möppu má alltaf búa til án þess að vera að fara í einhverjar framkvæmdir. Verkefnið er þá einmitt það eitt að vinna með eigin stíl, átta sig á honum, til að öðlast öryggi til að standa á sínu.

Með því að gefa huganum tíma, frelsi og að hugsa eingöngu um það eitt að geyma í þessari möppu það sem manni þykir fallegt, þá ætti að vera kominn vísir að því sem segir til um hver manns persónulegi stíll er. Við ættum að geta lesið í gegnum myndirnar í möppunni hver við erum og hvað er „heima“ fyrir okkur. Þarna skulum við staldra við og átta okkur á því að tilgangurinn með möppunni er ekki sá að gjörbreyta heimilinu okkar og þykja allt ómögulegt hjá okkur. Þvert á móti. Við skulum njóta þess að hafa áttað okkur á því hvað það er sem við viljum. Og kannski er það beint fyrir framan okkur! Draumaheimilið er okkar og með möppunni góðu vitum við hvað okkur langar að gera heima, hvað væri gaman að gera, hverju mætti breyta og svo framvegis. Þetta gerist ekki allt í einu og á ekki að gera það. Ég hef margoft sagt: Heimilið verður aldrei fullkomið. Það á í raun að vera fullkomið í sínum eigin ófullkomleika!

En með því að hafa meðvitað farið í gegnum það hvað hentar okkur og hvað ekki á netinu og samfélagsmiðlum. Verið vandlát og skoðað það eitt sem heillar okkur. Geymt myndir sem við samsömum okkur við og því sem við eigum. Áttað okkur á því hvar draumar okkar liggja þegar kemur að heimilinu okkar. Þá höfum við markvisst kynnst okkar eigin persónulega stíl. Við ættum því að finna gleðina á ný sem fylgir því að vinna með áhuga okkar á innanhússhönnun, vinna með heimilið okkar, og njóta þess öryggis að vita hvað við viljum án utanaðkomandi pressu.

Halla Bára Gestsdóttir, innanhússhönnuður, www.homeanddelicious.is @homeanddelicious

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál