Fröken Fix hannaði eldhúsið

Sesselja Thorberg, innanhússhönnuður og eigandi Fröken Fix, hannaði eldhús fyrir fjölskyldu í Reykjavík. Hún segir að eldhúsið sé blanda af nokkrum þáttum. 

„Viðskiptavinir mínir höfðu samband við mig með algjöra endurnýjun á eldhúsinu í huga. Gamla eldhúsið var búið að þjóna þessu húsi í Vesturbænum í áratugi, það var orðið slitið og lítil nýting á skápaplássi. Ég byrjaði á því að spjalla lengi við þau um eldhúsdraumana og fljótlega var ákveðið að sníða útlitið að dálæti heimilisföðursins á tiltekinni eldavél og heimilismóðurinnar á ítölskum ekta marmara. Verkefnið var dálítinn tíma í þróun en að lokum fórum við af stað með mjög mótaða leið sem við vorum öll hæstánægð með,“ segir hún. 

Sesselja Thorberg rekur fyrirtækið Fröken Fix.
Sesselja Thorberg rekur fyrirtækið Fröken Fix.

Aðspurð hvaða stíl hún vildi framkalla segir hún að eigendur hafi verið með ákveðnar hugmyndir og þetta hafi verið samsuða af nokkrum stílum. 

„Þar sem ég reyni alltaf að innrétta með þarfir og ákveðna stemningu í huga mætti nú kalla þetta eldhús samsuðu af nokkrum stílum. Ég tók smá Shaker, smá Ítalíu og smá Scandic og hrærði því saman í skál. Þrátt fyrir að eldhúsið sé í minna lagi held ég að það sé mjög gaman að töfra saman geggjaða rétti í þessu rými, með kertaljósum, hvítlaukslykt og Ellu Fitzgerald í botni eða það var alla vega fyrirmyndin hjá mér. Ég get ekki sagt að þetta tiltekna eldhús sé samt „ekta Fix“-eldhús því þau eru ótrúlega ólík verkin sem ég hef gert.“

Innréttingin í eldhúsinu kemur frá Parka en marmarinn í eldhúsinu frá Figaro. 

„Ég lagði mikla áherslu á stemningu í þessu tiltekna eldhúsi. Miklir kontrastar á gólfefnum og borðplötu á móti dökkum innréttingum voru lykilatriði hér. Þau eru mörg í heimili sem fá sér kaffi og kornflex á morgnana og því fannst okkur sérsmíðaður bekkur inn í hornið líka lykilatriði. Suðulist og Zenus gerðu bekkinn fyrir mig og Sóló húsgögn smíðuðu borðið fyrir mig. Til þess að allir þættir myndu spila rétt saman í þessu eldhúsi var nauðsynlegt að tefla fram miklu andstæðum og hafa þyngri innréttingar öðrum megin í eldhúsinu og léttara yfir hinum megin. Því faldi ég viftuna inni í kassa, teiknaði opnar hillur með skápum og lét lofta dálítið um líka. Blái tónninn á veggjunum er bæði til að „kæla“ niður rýmið en einnig til þess að skápar og innréttingar falli betur að formi rýmisins,“ segir Sesselja. 

Eru eldhús landsmanna að breytast? 

„Mér finnst viðhorf almennings til eldhússins fyrst og fremst vera að breytast. Þau eru persónulegri. Það hentar ekkert öllum það sem er í tísku hverju sinni, þess vegna er alltaf betra að hanna út frá persónuleika viðskiptavinarins, því hann verður alltaf til staðar en tískan breytist.“

Hvað vill fólk núna sem það vildi ekki áður?

„Ég get auðvitað talað aðeins út frá sjálfri mér og mínum viðskiptavinum. Mér finnst þau fyrst og fremst að persónulegur stíll sé að koma miklu betur fram. Fólk er ekki jafnhrætt vð að hafa innréttingar öðruvísi, í litum jafnvel og mér finnst viðskiptavinir mínir opnari fyrir áhættum og húmor. Og ég er auðvitað í skýjunum með það!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál