Innlit í risastóra einkaþotu Kanye West

Aðeins það besta fyrir Kanye West og Kim Kardashian.
Aðeins það besta fyrir Kanye West og Kim Kardashian. AFP

Kanye West og Kim Kardashian vilja aðeins það besta. Þau fljúga ekki með neinni venjulegri einkaflugvél en raunveruleikastjarnan og rapparinn virðast ekki vera að hugsa um kolefnissporið sitt. Kardashian sýndi fylgjendum sínum á Instagram hvernig stærstu stjörnur í heimi fljúga. 

Í flugvélinni sem er af gerðinni Boeing 747 eru ekki bara herbergi með lúxussætum heldur líka svefnherbergi eins og sjá má á myndum sem Kardashian setti á Instagram. Óhætt er að segja að flugvélin sé flottari og búi yfir meiri lúxus en heimili margra. Einkaþjálfarinn var með í för þar sem um langt flug var að ræða og nóg pláss til þess að taka æfingu í vélinni. 

Flugvélarnar sem eru á tveimur hæðum geta flogið með hundruð farþega í venjulegu farþegaflugi. Ekki voru svo margir með Kanye West, samstarfsfélögum hans hjá Yeezy og eiginkonu. Segir Kardashian að nú ferðist West eingöngu með svona júmbóþotu. 

Hjónin fengu sér svefnherbergi.
Hjónin fengu sér svefnherbergi. skjáskot/Instagram
Baðherbergið hjónanna er veglegt.
Baðherbergið hjónanna er veglegt. skjáskot/Instagram
Setustofa í fluvélinni.
Setustofa í fluvélinni. skjáskot/Instagram
Venjuleg sæti eru líka í vélinni.
Venjuleg sæti eru líka í vélinni. skjáskot/Instagram
Flugvélin er af gerðinni Boeing 747.
Flugvélin er af gerðinni Boeing 747. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál