Húsið sem Ármann færði yfir á konuna

Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku.
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku og fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lundúnum, skráði einbýlishús sitt og eiginkonu sinnar, Þórdísar Edwald, á hana stuttu áður en félag hans, Ármann Þorvaldsson ehf., var tekið til gjaldþrotaskipta. Hjónin gerðu kaupmála. 

Um er að ræða fasteignina við Dyngjuveg 2. Breytingu á eignarhaldi hússins var þinglýst 18. apríl 2011 eða skömmu áður en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. 

Greint var frá því í Lögbirtingablaðinu að kröfur í búið hafi verið um 5,7 milljarðar króna.

Húsið við Dyngjuveg 2 í 104 Reykjavík er glæsilegt eins og sést á þessum myndum. Það er 594 fm að stærð og byggt árið 1950 en eftir að hjónin Ármann og Þórdís festu kaup á húsinu var því breytt mikið. Fyrirhugað fasteignamat hússins fyrir 2019 eru 160.050.000 kr. 

Ármann er með lögheimili í húsinu ásamt eiginkonu sinni og tryggir hjá VÍS.  

Húsið við Dyngjuveg 2 er glæsilegt.
Húsið við Dyngjuveg 2 er glæsilegt. mbl.is/Kristinn Magnússon
Veglegt bílaplan er fyrir utan húsið.
Veglegt bílaplan er fyrir utan húsið. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál