Svona búa Harry og Meghan

Harry og Meghan halda til í sveitinni þegar þau hafa …
Harry og Meghan halda til í sveitinni þegar þau hafa tíma. AFP

Þegar Harry og Meghan eru ekki í London njóta þau að dvelja í húsi sem þau eru með á leigu á Cotswolds-svæðinu á Englandi. Er húsið stærra en það sem þau hafa til umráða í Kensington-höll og staðurinn sagður í miklu uppáhaldi hjá Meghan. 

Í dag, miðvikudag, birti The Sun myndir af gamla sveitabænum og svæðinu í kring en húsið var tekið í gegn árið 2011. Harry og Meghan tóku húsið á leigu í tvö ár í fyrravor en því fylgir fallegt útsýni og mikið næði enda sjá ekki nágrannar til þeirra í húsinu. 

Húsið er með fjórum svefnherbergjum, einu er búið að breyta í fataherbergi. Tvö eldhús eru í húsinu en búið er að breyta hlöðunni og setja stórir gluggar svip á rýmið. Einnig fylgir tveggja svefnherbergja útihús húsinu þar sem starfsfólk hjónanna dvelur að öllum líkindum. 

Nágrannar þeirra og gestir eru ekki af verri endanum en hjónin eru sögð hafa tekið á móti Clooney-hjónunum, Serenu Williams og eiginmanni hennar Alexis Ohanian og Priyönku Chopra og eiginmanni hennar Nick Jonas á bænum. 

Hér má sjá myndina af húsi hjónanna. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál