Eldhús Jodie Foster er algjör draumur

Jodie Foster á fallegt heimili.
Jodie Foster á fallegt heimili. mbl.is/AFP

Mikið er að gera hjá Jodie Foster þessa dagana. Hún er ekki bara að undirbúa endurgerð íslensku myndarinnar Kona fer í stríð heldur er hún líka að reyna að selja einstaklega fallegt hús sem hún á í Beverly Hills í Kaliforníu. 

Húsið er með fimm herbergjum og sjö baðherbergjum en People greinir frá því að Foster sem keypti húsið árið 2011 vilji fá 15,9 milljónir Bandaríkjadala fyrir villuna eða um tvo og hálfan milljarð. 

Húsið er afar notalegt og vekur eldhúsið sérstaka athygli. Það er án efa frábært að elda í fallegu eldhúsinu þar sem borðstofa tengist eldhúsinu sjálfu. Hægt er að opna rómantískar franskar hurðir út á verönd og stækka stofuna töluvert enda fylgir almennilegur garður og stór sundlaug húsinu.  

Eldhúsið er afar notalegt.
Eldhúsið er afar notalegt. ljósmynd/christiesrealestate.com
ljósmynd/christiesrealestate.com
ljósmynd/christiesrealestate.com
ljósmynd/christiesrealestate.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál