Ofurfyrirsætan Karlie Kloss og eiginmaður hennar, viðskiptamaðurinn Joshua Kushner, vilja líklega stækka við sig eftir brúðkaupið i fyrra. Íbúð Kloss og Kushner í New York er komin á sölu en þrátt fyrir að svefnherbergin séu bara tvö er stofan stór og glæsileg. New York Post greinir frá því að íbúð stjörnuhjónanna sé föl fyrir sjö milljónir dollara.
Búið er að gera íbúðina upp í anda iðnaðarhúsnæðis og setur lofthæðin svip á íbúðina. Arinninn stendur eins og listaverk í stofunni og er greinilega hugsað út í öll smáatriði. Frönsku hurðirnar eru flottar sem og blöndunartækin á baðinu.