Lúðvík Bergvinsson lögmaður og fyrrverandi alþingismaður og Þóra Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hafa sett falleg hús sem stendur við sjóinn á sölu. Fasteignamat hússins er rúmlega 121 milljón.
Húsið er 241 fm að stærð en það var byggt 1965. Heimili Lúðvíks og Þóru er afar smekklegt eins og sést á myndunum.
Í eldhúsinu er til dæmis upprunaleg Tekk-innrétting sem smíðað hefur verið í kringum. Þar hefur til dæmis verið bætt við plássi fyrir amerískan ísskáp og stóra gaseldavél.