Halla Bára: Gucci klæðir heimilið

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður skrifar um heimilislínu Gucci sem hvikar hvergi frá þeim hugarheimi sem hefur gert merkið að því verðmætasta í tískuheiminum. Hún rekur vefinn Home and Delicius og skrifar reglulega pistla inn á Smartland. 

Fyrir mér er það ávallt mikilvægt að hlutir búi yfir ákveðnu verðmæti. Ég vil gera allt verðmætt á einhvern hátt. Gera eitthvað einstakt úr því sem flestir líta ekki á sem verðmæti,“ segir Alessandro Michele, yfirhönnuður Gucci-tískuhússins.

Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður.
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Þegar tískuhönnuðir búa yfir jafn sterkri heildarsýn og Michele á vörumerkið sem þeir vinna fyrir, fá mjög frjálsar hendur og traust frá eigendum þess, þá getur skapast úr því heill heimur sem fólk vill verða hluti af. Það er óhætt að segja að Gucci-veröldin hafi náð til margra og sömuleiðis óhætt að segja að sú skapandi sál sem Alessandro Michele er eigi stærstan þátt í því.

Fötin skapa manninn og það hvernig við klæðum okkur getur sagt margt um yfirbragð heimilisins. Sterkur persónulegur fatastíll, sem er virkilega sannur og heiðarlegur, skín óhjákvæmilega í gegn í allri umgjörð á heimilinu. Þetta tvennt fer saman, því sami skapandi hugurinn er þar að baki, og hann ratar sína leið. Við klæðum okkur og við klæðum heimilið okkar.

Sú hugsun liggur einmitt að baki Gucci Décor-heimilislínunni sem er hugarsmíð Michele. „Kollurinn á mér er fullur af hugmyndum sem ég vinn úr,“ segir Alessandro um sköpunarferlið... „og einhvern veginn ná þær að smella saman.“ Grunnhugmyndin er að gera það hefðbundna óhefðbundið. Gera það verðmætara í huga fólks. Auka fegurðargildið, orkuna, spennuna, leikinn, gleðina. Hjá Alessandro Michele er meira greinilega meira!

Hann elskar liti, hann elskar dýr. Hann vill að allt búi yfir orku og hafi merkingu. Sé laust við yfirborðskennd og að þykjast betri en aðrir. Stíllinn er afgerandi, nokkuð ýktur og sóttur í áttunda áratuginn sem Alessandro Michele er hugleikinn en sem jafnframt er tímabil sem hefur alltaf verið ofarlega í Gucci-vitundinni. Þegar Jackie Kennedy dvaldi á eyjunni Capri á Ítalíu, klæddist Gucci og heimurinn tók eftir.

En eins og fólk er hvatt til að skapa sitt eigið yfirbragð og nota fatnað og fylgihluti frá Gucci á sinn hátt, þá er Alessandro Michele einmitt að gera það líka með heimilislínunni. Auglýsingar fyrirtækisins ganga sérlega langt þegar kemur að útliti og samsetningum og mörgum reynist erfitt að átta sig á að hver flík og hver hlutur er einstakur sem getur staðið einn og sér. Auglýsingar eru til að ná athygli og það hefur tekist hjá Gucci. Og séu þær greindar niður í hvert smáatriði birtist önnur sýn og einmitt þetta einstaka sem Alessandro Michele, vill að hver hlutur búi yfir.

Núna í apríl, í tengslum við hönnunarsýninguna Salone del Mobile, var opnuð tímabundin verslun í Mílanó þar sem heimilislína Gucci er sett upp á einstakan hátt. Að koma þar inn er að detta inn í hinn skapandi, einstaka og ýkta Gucci-heim, heim sem fer alla leið og miklu lengra, til að ná almennri athygli og beina henni síðan á ákveðnari staði.

Textíll, litir, mynstur, mótíf, myndir, form, áferð – allt tengt sterkum Gucci-rótum sem má sjá og greina í fatnaði og fylgihlutum fyrirtækisins. Þetta flæðir saman. En, takið eftir; allt undir þeim formerkjum að þú átt að klæða þig í Gucci á þinn einstaka hátt og nota húsgögn og aukahluti inn á heimilið á þinn einstaka hátt – gera hvort tveggja að þínu.

Myndirnar tók Gunnar Sverrisson í Gucci-versluninni í Mílanó í apríl.

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál