Svona lítur frumgerðin af ljósi Ólafs út

Hér má sjá frumgerð af ljósinu sem Ólafur er að …
Hér má sjá frumgerð af ljósinu sem Ólafur er að hanna í samstarfi við IKEA.

Ólafur Elíasson listamaður er að vinna með IKEA að ljósi sem er hlaðið með sólarorku. Þegar ég hitti hann á dögunum útskýrði hann fyrir mér hvers vegna hann hafi ákveðið að vinna með IKEA.

Ég hitti Ólaf Elíasson í Almhult í Svíþjóð þar sem hönnunardagar IKEA voru haldnir á dögunum. Í fyrra var samstarf Ólafs og IKEA kynnt en í ár er verkefnið komið lengra á leið þótt það komi ekki á markað fyrr en eftir tvö ár.

Á hönnunardögunum var Ólafur og samstarfsverkenið með sér bás þar sem verkefnið var kynnt og fumgerð þess sýnd. Frumgerðin gefur óljósa sýn á það hvernig ljósið mun líta út þegar það kemur á markað.

Ólafur Elíasson kynnti samstarf sitt við IKEA í Almhult í …
Ólafur Elíasson kynnti samstarf sitt við IKEA í Almhult í Svíþjóð á dögunum.

Ólafur er einn af þekktustu núlifandi listamönnum í heiminum í dag. Hann er þekktur fyrir skúlptúra sína og innsetningar þar sem hann vinnur meðal annars með ljós, vatn og lofthita. Hann hannaði til dæmis glerhjúpinn utan um Hörpu sem gefur Reykjavík allt annan svip. Í vikunni bárust fréttir af því að hann hafi verið fenginn til að lýsa upp Sigurbogann í París með innsetningu og verði verkið afhjúpað á næsta ári en kostnaðurinn við verkið er um 400 milljónir króna. Hann mun einnig opna stóra yfirlitssýningu á verkum sínum í Tate Modern-safninu í Lundúnum og mun sýningin opna í júní 2020.

En hvers vegna vinnur einn þekktasti listamaður heims með fyrirtækjum eins og IKEA?

„Ég hef unnið í sjö ár með Little Sun, sem er góðgerðarverkefni, og höfum við selt um milljón ljós. Þegar IKEA heyrði af því vildu þau koma í samstarf. Við erum umhverfisvæn og gefum fólki möguleika á að leika sér með sólina, hlaða batteríin og hafa ljós,“ segir Ólafur og bætir við:

„IKEA hefur verið að hugsa um svipuð mál og við hjá The Little Sun og hugsar mikið um sjálfbærni eins og hvernig tré verður að mublu og hvernig hægt er að nýta efniviðinn sem best. Þeir hjá IKEA buðu mér og fólkinu sem vinnur með mér í The Little Sun í Berlín á vinnustofu sem var mjög gaman. Þeir eru svo stórir og þess vegna býður verkefnið upp á svo miklu meiri möguleika. Helst áskorunin er hvernig hægt er að framleiða eitthvað sem er nógu ódýrt til þess að fólk á Íslandi og í Bangladess og víða um heim, geti keypt það.“

Ólafur segir að þau séu að reyna að finna rétta efnið í ljósið þessa dagana en það er ekki alveg fundið. Efnið þarf að vera sjálfbært og ódýrt og það verður að vera tryggt að efnið skemmi ekki náttúruna eftir 10, 15 eða 20 ár.

„Þetta er allt öðruvísi ferli en þegar ég er að vinna sem listamaður. Þá geri ég bara einn hlut og hann er kannski svolítið dýr. Ég er því að læra mikið af þessu því þetta er allt öðruvísi en ég er vanur að vinna.“

Hann segir að það sé líka áhugavert að skoða framtíðarheimilið og hvernig hugmyndir fólks um heimili eru að breytast.

„Kúnnarnir hjá IKEA eru mikið ungt fólk sem býr þröngt og býr kannski þannig að það megi ekki bora í veggina. Þá er gott að eiga sólarplexus sem má hafa úti og inni og er færanlegur. Batteríið í ljósinu skiptir miklu máli. Það er svolítið eins og að eiga peninga í banka. Þegar það er hlaðið þá getur það lýst upp eða hlaðið raftæki eins og síma eða iPad. Það mun þó aldrei verða það öflugt að það geti knúið áfram sjónvarp eða stóra tölvu.

Í fyrstu var hugmyndin að gera lampa sem er fastur við loft eða veggi en svo fórum við að skoða hvað það er sem ungt fólk sækist eftir. Ungt fólk í dag hagar sér allt öðruvísi en þegar ég var ungur. Þá sat ég við borð til dæmis en ungt fólk í dag liggur uppi í rúmi eða á gólfinu með tölvuna sína. Tölvan í dag er ekki föst neins staðar og þess vegna verður þetta að vera þannig að hægt sé að taka ljósið alltaf með sér. Hvort sem maður er að fara niður í geymslu eða út í bílskúr.“

Básinn á sýningunni var sérlega flottur.
Básinn á sýningunni var sérlega flottur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál