„Sega mega“ háloftaíbúð Matthew Perry

Matthew Perry er þekktur fyrir túlkun sína á Chandler Bing …
Matthew Perry er þekktur fyrir túlkun sína á Chandler Bing í Friends. mbl.is/ REUTERS

Friends-leikarinn Matthew Perry hefur sett glæsiíbúð sína í Los Angeles á sölu. Þegar íbúðin fór á sölu í síðustu viku var hún dýrasta íbúðin á fasteignamarkaðnum í Los Angeles að því er fram kemur á vef Page Six. Verðmiðinn er hvorki meira né minna en 35 milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 4,3 milljarðar íslenskra króna. 

Hvað fær fólk svo fyrir svona rándýra íbúð sem kölluð er „höfðingjasetur í háloftunum“ af fasteignasölum?

Íbúðin er nýuppgerð og er á fertugustu og efstu hæð svo útsýnið er mjög gott. Ekki nema fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni en átta baðherbergi eru til staðar svo enginn þarf að bíða í röð til þess að komast á klósettið en inni í íbúðinni er meðal annars bíósalur. Útisvæðið er veglegt þrátt fyrir að íbúðin sé hátt uppi en fjögur útisvæði fylgja íbúðinni. 

Er Perry sagður vera að selja íbúðina þar sem hann dvelur nú meira í New York. 

ljósmynd/Michael Macnamara/Jason Speth
ljósmynd/Michael Macnamara/Jason Speth
ljósmynd/Michael Macnamara/Jason Speth
ljósmynd/Michael Macnamara/Jason Speth
ljósmynd/Michael Macnamara/Jason Speth
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál