Kanye West tók upp lag í Vogaseli: Húsið komið á sölu

Vogasel 9 í Seljahverfi er komið á sölu.
Vogasel 9 í Seljahverfi er komið á sölu.

Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður og upptökustjóri hefur sett einbýlishús sitt í Seljahverfi í Reykjavík á sölu. Í húsinu hefur hann rekið hljóðverið Gróðurhúsið, sem notið hefur vinsælda. 

Árið 2016 kom Kanye West í stúdíóið hans til að taka upp sinn hluta af laginu „Love Yourself“ með Mary J. Blige. 

Valgeir lýsti heimsókn Kanyes West og Kim Kardashian í Lestinni á Rás 1 árið 2017.

Húsið við Vogasel er enginn hundakofi því það er 488 fm að stærð og var byggt 1979. Hluti af húsinu er iðnaðarrými sem hefur hentað vel fyrir Valgeir og Gróðurhúsið sem er 250 fm af heildarfermetrafjölda. 

Af fasteignavef mbl.is: Vogasel 9

Kanye West tók upp lag í Vogaseli 9. Nú er …
Kanye West tók upp lag í Vogaseli 9. Nú er húsið komið á sölu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál