Gjörbreyttu baðherberginu fyrir 35.000 kr.

Dagur Ólafsson og Guðrún Emilsdóttir með frumburð sinn, Þorvald Daða.
Dagur Ólafsson og Guðrún Emilsdóttir með frumburð sinn, Þorvald Daða.

Guðrún Emilsdóttir rekstrarstjóri og Dagur Ólafsson læknir búa ásamt tveggja ára syni sínum, Þorvaldi Daða, í fallegri í búð í Vesturbæ Reykjavíkur. Á dögunum ákváðu þau að taka baðherbergið í gegn á sniðugan og ódýran hátt en þau fluttu inn í nóvember.

„Við bjuggum í lítilli íbúð í gamla Vesturbænum sem við keyptum 2015 og okkur leið alveg rosalega vel þar. Við fórum svo að hugsa um að stækka við okkur í janúar á þessu ári og við tók löng leit,“ segir Guðrún en að lokum fundu þau réttu íbúðina.

Svona leit baðherbergið út áður en þau hófust handa við …
Svona leit baðherbergið út áður en þau hófust handa við að breyta því.

„Við skoðuðum margar íbúðir bæði nýjar og gamlar en eftir miklar vangaveltur komumst við að því að við heillumst af gömlum húsum. Við römbuðum á þessa íbúð og féllum strax fyrir henni. Í grunninn var hún mjög falleg, eldhúsið í fínu standi, gólfið hrikalega flott en það þurfti að láta pússa það upp, en íbúðin í heild þurfti smá ást í formi málningarvinnu. Ég leitaði til snillinganna hjá Slippfélaginu og fékk frábær ráð varðandi gólflista, vegglista, hurðakarma og annað en þetta var mikil lakkvinna sem við fórum í,“ segir Guðrún.

Hún segir þau hafa verið svolítið týnd þegar kom að baðherberginu.

„Baðherbergið var það eina sem ég var í vandræðum með. Við tímdum ekki að rífa það og gera nýtt því í raun var ekkert að flísunum nema þá að liturinn var heldur úreltur. Innréttingin hafði orðið fyrir vatnsskemmdum og var upphleypt og ljót en við fengum aðila til að filma hana fyrir okkur. Ég ákvað að leggjast í það verkefni að lakka flísarnar og aftur leitaði ég til Slippfélagsins,“ segir hún.

Þau notuðu tveggja þátta epoxy-lakk sem oft er kallað skipalakk.

„Tveggja þátta lakk þýðir einfaldlega að maður þarf sjálfur að blanda saman lakkinu og herðinum rétt áður en það er notað en það er ekkert mál með réttum áhöldum. Áður en lakkað er þarf að grunna með tveggja þátta epoxy-grunni. Heildarkostnaður var í kringum 35.000 sem er alveg frábært fyrir gjörsamlega nýjar flísar. Loftið var svo málað í litnum öskugrár.“

Hvar fenguð þið innblástur í þetta verkefni?

„Ég skoðaði mikið myndir á netinu og blaðaði í blöðum.“

Tók þetta langan tíma?

„Það er bara hægt að gera eina umferð á dag svo þetta eru allavega þrír dagar. Undirbúningsvinnan er mikilvægust en hún tekur kannski einn dag í heildina líka. Ætli þetta hafi ekki verið fjórir eða fimm dagar með öllu; undirbúningi, lökkun og öllum frágangi.“

Baðherbergið var grunnað áður en réttur litur fór á það.
Baðherbergið var grunnað áður en réttur litur fór á það.
Hér er fyrsta umferðin komin á.
Hér er fyrsta umferðin komin á.




Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga fyrir lökkun:

Þrífa alla fitu vel af flísum og allt baðherbergið vel.

Pússa flísar með meðalgrófum sandpappír.

Þrífa aftur vel og passa að engin fita eða sandur sé til staðar.

Teipa meðfram því sem ekki á að lakka. Setja pappa eða plast yfir innréttingar, bað og gólf.

Mæli með að vera tveir saman í verkinu.

Fjárfesta í góðum hönskum og góðri grímu yfir öndunarfæri. Þetta efni er mikið eitur og því þarf að vanda til verka og passa að það snerti ekki húðina.

Lofta vel út en passa að hafa herbergið ekki of kalt því þá er erfiðara að vinna með efnið.

Fjárfesta í hrærara framan á skrúfvél. Notast til að blanda saman efni og herði.

Fjárfesta í þynningarefni fyrir bæði grunn og lakk. Það er erfitt að vinna með efnið þegar maður er langt komin með dolluna svo gott er að þynna það aðeins.

Athugið að eftir að penslar eða rúllur eru notaðir á eina umferð eru þeir ónýtir og því þarf að kaupa umgang fyrir hverja umferð.

Kaupa lakkið í minni umbúðum, eftir að herðinum og lakkinu er blandað saman hefur maður bara vissan tíma til að vinna með það og því betra að hafa þetta í minni einingum og blanda nýtt þegar ein dolla er búin.

Ein umferð af grunni, við notuðum gráan grunn.

Tvær umferðir af lakki

Skera meðfram köntum og rúlla á sama tíma, einn að skera og annar að elta strax með rúllu.

Eftir hverja umferð mæli ég með að taka teipið strax á meðan lakkið er blautt og teipa svo aftur fyrir næstu umferð. Ef það er ekki gert mæli ég með að skera með dúkahníf meðfram teipi áður en það er tekið svo teipið fletti ekki lakkinu af.

Eftir hverja umferð, loka strax öllum dollum sem eru búnar, ganga frá penslum og fara með út. Mæli með að fara strax með þetta í eiturefnagáminn í Sorpu.

Frágangur. Eins og kom fram hér að framan er mikilvægt að teiptð sé ekki tekið af á meðan lakkið er ennþá blautt og skera með dúkahníf meðfram áður en teipið er tekið svo það fletti ekki lakkinu af. Ég mæli svo með að kítta með silíkonkítti í öll sár, meðfram gólfi, meðfram baði, meðfram innréttingu og annars staðar svo ekki komist vatn á milli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál