Hvíti liturinn gerir geggjaða hluti við Flókagötu

Við Flókagötu 43 stendur afar glæsileg 184 fm íbúð á besta stað. Um er að ræða miðhæð með bílskúr á tveimur hæðum og góðri geymslu í kjallara. 

Íbúðin sýnir og sannar hvað hvíti liturinn er fallegur á veggjum þegar raðað er „rétt“ með honum. Ljós húsgögn fá að njóta sín og á gólfum er fallegt eikar parket. 

Þegar inn í eldhúsið er komið er svört innrétting með dökkbrúnum borðplötum. Veggir eru flísalagðir með flískum í frönskum stíl og fær stór spegill að njóta sín í rýminu. Vegglampar ramma inn heillandi stemningu. 

Eins og sést á myndunum á hver hlutur sinn stað. 

Af fasteignavef mbl.is: Flókagata 43

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál