Við Löngulínu í Garðabæ stendur glæsileg íbúð með fantaflottu útsýni út á sjó. Íbúðin er á þriðju hæð og staðsett á einstökum stað á þessum vinsæla stað á höfuðborgarsvæðinu.
Sjálf er íbúðin 146 fermetrar og er ekkert til sparað í innréttingum og smartheitum. Allar innréttingar eru sérsmíðar hjá Brúnási.
Í eldhúsinu er til dæmis vönduð og falleg innrétting úr dökkum viði og eru ljósar granítplötur á borðunum. Gott skápapláss er í eldhúsinu og það er vel tækjum búið. Eyjan í eldhúsinu er klædd með graníti í hliðum sem kemur ákaflega vel út.
Í sjónvarpsholi er sérsmíðaður sjónvarpsveggur með hillum sem fellur vel inn í umhverfið. Úr stofu og eldhúsi er afar gott útsýni út á haf, bæði til Reykjavíkur og til Bessastaða.