Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja eru í óða önn að undirbúa flutninga frá Bretlandi yfir til Norður-Ameríku. Þau hafa dvalið í Kanada síðustu vikur en nú eru þau sögð vera komin með augastað á húsi til leigu í Los Angeles.
Húsið, Petra Manor, er sannkallað glæsihús með 8 herbergjum og 10 baðherbergjum en raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er meðal annars einn af fyrrverandi leigjendum hússins. Leigan á húsinu eru rúmar tvær milljónir íslenskra króna fyrir nóttina.
Harry og Meghan eru sögð ætla að dvelja í húsinu um stundarsakir á meðan þau ákveða hvar þau ætla að búa til lengri tíma litið og festa rætur.
Húsið er ekkert slor en í garðinum er tennisvöllur og sundlaugar. Það er hátt til lofts og vítt til veggja í húsinu sem er í 30 mínútna akstursfjarlægð frá móður Meghan, Doriu Ragland.