Ragnar og Kári Sverriss gera upp íbúðina sína í 101

Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt og Kári Sverriss ljósmyndari eru að gera …
Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt og Kári Sverriss ljósmyndari eru að gera upp íbúð í 101 sem þeir keyptu í lok síðasta árs. Þeir ætla að leyfa lesendum Smartlands að fylgjast með ferlinu.

Kærustuparið Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt og Kári Sverriss ljósmyndari keyptu nýlega íbúð og eru að gera hana upp. Þeir ætla að leyfa lesendum Smartlands að fylgjast með ferlinu. 

„Saman keyptum við okkur íbúð í lok ársins 2019 í 101. Eftir 3 ár í Hafnarfirðinum og Garðabænum þá ákváðum við að það væri kominn tími til að byrja upp á nýtt, skrifa nýjan kafla í bók lífsins. Okkur langaði að vera meira miðsvæðis, nota bílinn minna, styttra að labba í flest allt og meira mannlíf, en báðir erum við frekar miklar félagsverur,“ segja þeir í sínum fyrsta pistli á Smartlandi: heima 

Við notuðum síðastliðnu mánuði til þess að skipuleggja breytingarnar og spáðum í hvað við vildum gera við nýju íbúðina. Íbúðin er 3 herbergja og með 3 metra lofthæð, ég endurtek 3 metra lofthæð. Nýja íbúðin er með gömlum gluggum með einföldu gleri og upprunalegir listar í loftunum. Okkur leið svona smá eins og að við værum komnir til Parísar fyrir 50-60 árum síðan þegar við sáum íbúðina, og svo sáum við fyrir okkur möguleikana sem eru endalausir.

IMG_4016

IMG_4014

IMG_3994

IMG_3996

IMG_3988

teikning 

IMG_4000

IMG_4028

Við féllum fyrir staðsetningunni, stærðinni, garðinum og möguleikunum. Eins og áður sagði auðvitað lofthæðinni. Þegar við fórum í það að skoða hvað við gætum gert og hvað við vildum gera að þá gerðum við okkur grein fyrir því að við erum báðir með mjög sterkar skoðanir, og við þurftum því að finna leið til þess að sameina krafta okkar og láta líka og ólíka stíla mætast í eitt. Kári er allur í smáatriðunum og hugsar í myndum  og Ragnar í heildarmynd og skipulagi. Þannig að við tókum þá ákvörðun að Ragnar sæi um allt naglfast og ég um aukhluti, húsgögn og smádót, en allt samt með tengingu og í litaþema.

IMG_3687

Við ætlum ekki að gefa upp of mikið í fyrsta blogginu, heldur vildum við bara aðeins kynna okkur og leyfa ykkur að fylgjast með ferlinu frá upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál