Tinna Brá lokar Hrími við Laugaveg

Tinna Brá Baldvinsdóttir í Hrím.
Tinna Brá Baldvinsdóttir í Hrím. mbl.is/Golli

„Með blóði, svita og tárum hef ég rekið Hrím hönnunarhús á Laugvegi í 8 ár. Í dag er staðan sú að við erum að loka þeirri verslun endanlega. Ég er ekkert að grínast þegar ég hef kallað Hrím barnið mitt, búðin á Laugavegi varð svo miðjubarnið þegar Hrím var opnað í Kringlunni 2015,“ segir Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms, en hún tilkynnti það á Facebook að hún ætlaði að loka búðinni. 

„Ég hef alltaf elskað Laugaveginn, þetta er uppáhaldsgatan mín í Reykjavík. Miðbærinn hefur verið mér mjög kær, svo kær að ég sat í stjórn Miðborgarinnar okkar í nokkur ár og einnig í dómnefnd við samkeppni á hönnun nýs Laugavegar. Mér er mjög annt um götuna og á þar líka fasteign. Staðan er því miður ekki góð núna og verður það næsta árið er ég hrædd um. Ég tel þó að þetta verði vonandi þess valdandi að leiguverð lækki og einstöku verslanirnar & veitingastaðirnir okkar þar lifi áfram. Stjórnvöld þurfa líka að grípa hratt þarna inn í til að fá sem mest líf á ný í líflegustu götu borgarinnar okkar.“

Tinna segir að það sé erfið ákvörðun að ákveða að loka Hrími. 

„Eftir að hafa syrgt núna í nokkra daga að hafa þurft að taka þessa erfiðu ákvörðun hef ég fundið fyrir miklum létti. Ég veit að þetta mun allt blessast, það gengur mjög vel hjá okkur í Kringlunni og nýja vefverslunin okkar gengur ofsalega vel. Við erum með yndislegt starfsfólk sem hefur tekið þessum erfiðu breytingu með æðruleysi og lagt sig mjög fram um að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Þeim er ég virkilega þakklát.

Saman komumst við í gegnum þetta og þetta blessast allt hjá okkur. Ég vona innilega að sem flestar verslanir og veitingastaðir muni standa þetta af sér og að allt lifni svo við í sumar.
Þar þurfum við Íslendingar að standa okkur vel og versla við verslanir sem okkur eru kærar og borða reglulega á veitingastöðum sem eru okkur kærir. Lífið heldur áfram,“ segir hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál