Sjáðu bústaðinn sem Clarkson dvelur í

Kelly Clarkson.
Kelly Clarkson. AFP

Tónlistarkonan Kelly Clarkson og fjölskylda hennar eru í sóttkví á búgarðinum sínum í Montana-ríki í Bandaríkjunum. 

Clarkson sýndi bústaðinn í nýjasta þætti af The Kelly Clarkson Show. Bústaðurinn virðist ekki vera mjög stór en er afskaplega krúttlegur og kósý. Clarkson dvelur í bústaðnum ásamt eiginmanni sínum Brandon Blackstock og þremur af fjórum börnum sínum.

Remi og River sofa í koju og hinn 13 ára gamli Seth á einnig rúm í bústanum. Elsta dóttir þeirra hjóna, Savannah, kemur sjaldan með þeim í bústaðinn, en einnig er pláss fyrir hana. 

Clarkson og Blackstock keyptu búgarðinn fyrir rúmlega einu og hálfu ári og njóta þess að skella sér í sveitina. Hún sýndi betur frá landareigninni í lok mars síðastliðinn. 

Hurðin á bústaðnum.
Hurðin á bústaðnum. skjáskot/Instagram
Hjónarúmið.
Hjónarúmið. skjáskot/Instagram
Þarna sofa Remi og River.
Þarna sofa Remi og River. skjáskot/Instagram
Kamínan.
Kamínan. skjáskot/Instagram







mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál