Stækkaðu íbúðina með því að færa stofuna út í garð

Sófinn HAVSTEN frá IKEA er mjög þægilegur og smart.
Sófinn HAVSTEN frá IKEA er mjög þægilegur og smart.

Á tímum sem þessum þar sem við sjáum fram á að verja sumrinu heima hjá okkur er ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvað við getum gert til þess að heimilið verði vistlegra og þá sérstaklega útisvæðið heima hjá okkur. Hér eru nokkrar góðar hugmyndir ef þú vilt gera útisvæðið nokkrum prósentum meira heillandi.

Heimilið stækkar mjög mikið ef útisvæðið er þannig hannað að það er eins og viðbót við stofuna. Til þess að þeim tilgangi sé náð þurfa útihúsgögnin að henta okkar lífsstíl og vera þægileg. Það þarf að fara vel um okkur og við verðum að geta látið eins og við séum í útlöndum þótt við séum heima.
Pullur búa til stemningu í garðinum.
Pullur búa til stemningu í garðinum.

Ef þú elskar að liggja og lesa skaltu koma þér upp sólbekk. Það er hægt að fá ódýra sólbekki á mörgum stöðum í bænum og ekki verra ef hægt er að brjóta þá saman þannig að lítið fari fyrir þeim í vetrargeymslu.

Toppurinn á tilverunni er að vera með þægilegan útisófa. Á dögunum lenti HAVSTEN-línan í IKEA en hún inniheldur útisófa sem hægt er að púsla saman að vild. Hægt er að breyta honum úr hægindastól í tveggja sæta sófa, þriggja sæta eða hreinlega tíu sæta sófa ef þú hefur pláss í það.

Sófinn er afar frábrugðinn öðrum þægilegum útisófum sem oft eru stórir og þungir en hann er gerður úr léttu duftlökkuðu stáli og er með mjúkum og þægilegum púðum sem þola bæði sterka sólargeisla og létt regn.

„Ég vildi gera fjölhæfan sófa sem auðvelt er að færa til og útfæra á ýmsa vegu og ég vildi einnig að hann passaði í flatar pakkningar svo auðvelt væri að taka hann með sér heim úr versluninni,“ segir Andreas Fredrikson, hönnuður HAVSTEN, sem færði honum hin virtu Red Dot-hönnunarverðlaun.

Með HAVSTEN-sófann á þínu útisvæði getur þú leikið þér að vild enda er hann hlutlaus grunnur sem þú getur bætt við og fært til eftir þörfum. Svo geturðu bætt við mottu, flottri lýsingu eða útiborði og þá ertu komin/n með nýjan heim.

BONDHOLMEN með svörtum pullum.
BONDHOLMEN með svörtum pullum.
BONDHOLMEN-línan frá IKEA inniheldur falleg tréhúsgögn sem eru grá á …
BONDHOLMEN-línan frá IKEA inniheldur falleg tréhúsgögn sem eru grá á litinn.

Ef þú ert þessi týpa sem vill hafa allt gegnheilt þá er BONDHOLMEN-línan frá IKEA mögulega eitthvað fyrir þig. Stólarnir eru hannaðir til að veita góðan stuðning og borðin eru nógu stór fyrir alla fjölskylduna. Viðurinn er vandaður og endingargóður og þola þessi húsgögn margt.

Þegar þú ert búin/n að ákveða hvaða stíl þú vilt hafa á þínu útisvæði er sniðugt að koma sér upp fylgihlutum sem búa til stemningu. Saumaðu púða til að hafa í útihúsgögnunum, ræktaðu sumarblóm á svölunum (eða kauptu gerviblóm) og kauptu sólhlíf ef þú vilt ekki verða eins og gamalt útjaskað Chesterfield-sófasett í framan eftir alla útiveruna.

Það er fátt meira skemmtilegt en að geta borðað úti.
Það er fátt meira skemmtilegt en að geta borðað úti.
Púðar á bekk búa til stemningu í garðinum.
Púðar á bekk búa til stemningu í garðinum.
Luktir í trjám breyta garðinum þínum í ævintýragarð.
Luktir í trjám breyta garðinum þínum í ævintýragarð.
BONDHOLMEN-sófi og tveir stólar færa stofuna út í garð.
BONDHOLMEN-sófi og tveir stólar færa stofuna út í garð.
Hér má sjá stólinn HAVSTEN í notalegu umhverfi á svölum.
Hér má sjá stólinn HAVSTEN í notalegu umhverfi á svölum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál