Býr í náttúruparadís í Noregi

Björg Bjarnadóttir býr í Noregi þar sem hún lifir og …
Björg Bjarnadóttir býr í Noregi þar sem hún lifir og starfar.

Björg Bjarnadóttir viðskiptafræðingur, var 12 ára þegar hún flutti til Noregs ásamt fjölskyldu sinni. Hún er fyrrverandi knattspyrnukona sem spilaði í sex ár í efstu deild í Noregi. Í dag starfar hún fyrir olíufyrirtæki og býr í fallegu umhverfi í faðmi fjölskyldunnar, með eiginmanni sínum Jørn Vølstad og þremur börnum. 

Hvar býrðu og hvað starfarðu við úti?

„Ég bý i Sviland sem er bæjarhluti i útjaðri Sandnes i Noregi. Maðurinn minn er frá þessum bæjarhluta og við keyptum okkur hús hér fyrir nokkrum árum. Við búum hér í sterkum tengslum við náttúruna, þar sem er stutt í fallegar gönguleiðir, í fjallgöngur og listgarða.

Hér er einstaklega fallegt útsýni, sem ekki er sjálfgefið ef maður byggi í meira þéttbýli. Að líta út um gluggann er eins og að horfa á málverk. Í dag starfa ég fyrir stórt amerískt olíufyrirtæki í Stavanger.“

Gráir litir eru fallegir með bleikum og svörtum tónum.
Gráir litir eru fallegir með bleikum og svörtum tónum.

Hvernig lýsirðu þínum persónulega stíl heima?

„Minn persónulegi stíll er fyrst og fremst minimalískur, með innblæstri frá bóhemískum og suðrænum stíl. Ég er hrifin af efnum úr náttúrunni eins og tré og leir. Smekkurinn minn er alltaf að þróast og er lifandi og hefur breyst með tímanum. Ég fæ innblástur á ferðalögum, úr tímaritum og frá samfélagsmiðlum. Ég skoða mikið af fallegum heimilum og heillast af öllu mögulegu úr mismunandi stílum. Ég er ekki hrædd við að blanda stílum og hugsanlega yrði næsta heimili allt öðruvísi en núverandi heimili.“

Það er mikið um tré og plöntur heima hjá Björg.
Það er mikið um tré og plöntur heima hjá Björg.

Hvað getur þú sagt mér um litavalið á veggjunum heima?

„Þegar við fengum húsið afhent voru allir veggir hvítir, en við fundum fljótt að það hentaði okkur ekki nógu vel. Ég vildi daufa litapallíettu sem gefur húsinu líf. Flest öll herbergi og alrými eru máluð í ólíkum gráum tónum, sem gefa mismunandi stemningu. Mér líður best í  björtu og rólegu umhverfi og finnst mikilvægt að geta komið heim úr vinnu og geta notið kaffibollans í rólegheitum. Litirnir og hlutirnir i kringum mig hafa áhrif á mína vellíðan og það er mér mikilvægt.“

Blóm tengja heimilið við náttúruna.
Blóm tengja heimilið við náttúruna.

Gerðir þú húsnæðið upp sjálf?

„Við keyptum húsið nýtt, en við fengum að raða vissum hlutum sjálf og breyttum heilmiklu. Við teiknuðum eldhús- og baðherbergisinnréttingarnar og breyttum ýmsu i sambandi við rafmagn og lýsingu. Þegar þriðja barnið bættist í hópinn, gerðum við breytingar og bættum við auka svefnherbergi í húsið. Við byggðum okkur einnig bílskúr, sem ekki var gert ráð fyrir upphaflega.“

Áttu góð ráð þegar kemur að því að raða?

„Ég vel mér hluti sem mér þykir fallegir og ég finn að hafa góð áhrif á mig. Mér finnst gaman að breyta staðsetningu á hlutunum af og til og sjá hvernig þeir koma út annars staðar í  húsinu. Hlutirnir hjá mér eru mikið á flakki á milli staða. Það getur oft verið fallegt að raða nokkrum hlutum saman, en svo mega líka stórir og sérstakir hlutir standa einir. Þeir fá þá að  njóta sin án of mikillar samkeppni við annað. Ég er mikið fyrir plöntur og blóm sem er að finna út um allt húsið. Það gefur lit og lif og skapar góða stemningu.“

Björg er mikið fyrir að baka.
Björg er mikið fyrir að baka.

Hvernig heldur maður barnaherberginu hreinu og fallegu?

„Ég get alls ekki sagt að barnaherbergin séu alltaf í góðu standi. Börnin mín eru eins og öll önnur börn og mega nota herbergið sitt eins og þau vilja. En mér finnst samt mikilvægt að þegar degi lýkur að barnaherbergin séu hrein og notaleg og að börnunum líði vel í sínum heimi og þá sérstaklega á kvöldin þegar þau fara að sofa. 

Leikföng eru flokkuð og sett í ýmsar fallegar hirslur inn í herbergi. Þannig taka hirslurnar þátt í því að setja svip á herbergið og gefa því hlýleika. Þá er líka stutt í dótið og léttara að ganga frá því. Við notum falleg leikföng, bækur, skírnargjafir og fleira að gera herbergin persónulegri.“ 

Kökur og glæsilegar veitingar heima.
Kökur og glæsilegar veitingar heima.

Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið?

„Þegar byrjaði að vora ákváðum við að bæta upp á garðinn og útisvæðið. Við keyptum okkur ný garðhúsgögn, fallega plöntur og potta sem lífga upp á útisvæðið. Það sem mér þykir samt vænst um eru blómakassarnir sem ég bað manninn minn um að smíða. Þeir setja einstaklega góðan svip á heildina og eru punkturinn yfir i-ið.“

Hvað langar þig að deila með lesendum þegar kemur að því að gera fallegt heimili?

„Fyrst og fremst að fara eftir eigin smekk, hvernig sem hann er. Það er mikilvægt að nýta rýmið og velja húsgögn sem fara rýminu vel. Grænar plöntur gefa lif í húsið og litir á  veggjum gefa persónuleika og hlýju. Ég mæli líka með að skoða tímarit og sem dæmi  Instagram fyrir innblástur.“

Hver er uppáhalds staðurinn þinn heima?

„Ég er uppalin á Akureyri og fer alltaf norður þegar ég fer heim til Íslands, en uppáhalds staðurinn minn á Íslandi er Öxarfjörður. Ég eyddi hverju sumri þar hjá ömmu og afa sem lítil stelpa. Afi var skólastjóri og amma kennari við Lundarskóla og þau voru með hesta og búskap. Þaðan eru mínar bestu æskuminningar.“ 

Í barnaherberginu er fallega raðað svo börnin nái góðum svefn …
Í barnaherberginu er fallega raðað svo börnin nái góðum svefn á nóttunni.

Hvað langar þig að gera næst á heimilinu?

„Næst á dagskrá er að mála alla veggi í stofunni og eldhúsinu og breyta aðeins til í  forstofunni. Þar þurfum við meira skápa pláss sem hentar fimm manna fjölskyldu. Svo á  auðvitað að mála í einhverjum fallegum lit. Þar finnst mér mikilvægast að vera með  praktískar lausnir, að rýmið sé notfært og að það sé fallegt og notalegt að koma inn fyrir dyrnar. Forstofan er það fyrsta sem mætir fólki þegar það kemur inn og því finnst mér vera mikilvægt að kynna heimilið vel við anddyrið.“

 Ertu mikið fyrir að elda?

„Já ég er mikið fyrir að elda góðan mat og finnst kvöldmaður vera mikilvægasti hluti dagsins fyrir okkur fjölskylduna. Þá setjumst við niður við borð og spjöllum saman eftir vinnu og skóla. Mér finnst líka skemmtilegt að baka og er bæði í gerbakstri og tertum.“

Hver einasti hlutur á sinn stað á heimilinu.
Hver einasti hlutur á sinn stað á heimilinu.

Hvað er ómissandi í eldhúsið?

„Kaffivél, ólífuolíur og ávextir. Ég læt olíur og te, bretti standa frammi og er alltaf með ferska ávexti í skál á eldhúsborðinu. Blóm eru einnig ómissandi, í fallegum vasa á borðinu.“

Svefnherbergið er fullt af þægilegum koddum, mjúku teppi og listaverkum.
Svefnherbergið er fullt af þægilegum koddum, mjúku teppi og listaverkum.
Barnaherbergi með birtu og fegurð.
Barnaherbergi með birtu og fegurð.
Einfalt og fallegt.
Einfalt og fallegt.
Úti í garði er setið löngum stundum nú þegar aðstaðan …
Úti í garði er setið löngum stundum nú þegar aðstaðan er orðin svona góð.
Rýmið úti tónar við heimilið inni.
Rýmið úti tónar við heimilið inni.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál