Hrafnhildur Þorsteinsdóttir og Þór Þorteinsson, eigendur Heit Gólf og Alifuglabúsins á Jarlsstöðum í Landsveit, hafa sett sína fallegu íbúð á sölu. Um er að ræða 151.9 fm íbúð við Glaðheima í Reykjavík. Húsið sjálft var byggt 1960.
Íbúðin er máluð í ljósum tónum og eru falleg flotuð gólf á íbúðinni. Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með granít-borðplötum. Eldhús og borðstofa eru í sama rými og svo er opið inn í stofu til hliðar.
Stíll Hrafnhildar og Þórs er afar heillandi eins og sést á myndunum. HÉR getur þú skoðað íbúðina í þrívídd.