Einstakt heimili Önnu og Atla á Akureyri

Anna Örvarsson varði miklum tíma í að hanna heimili fjölskyldunnar …
Anna Örvarsson varði miklum tíma í að hanna heimili fjölskyldunnar á Akureyri. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Anna Örvarsson var fjögur ár að vinna að hönnun húss fjölskyldunnar á Akureyri. Hún leggur mikla áherslu á sjálfbærni og setur ávallt náttúruna í forgang. Fyrir ári opnaði hún konseptverslunina Fjord og segir að allt sem hún hafi gert í lífinu hafi leitt sig á þann stað. 

Hús þeirra hjóna, Önnu og Atla Örvarssonar, er afar fallegt og með dásamlegu útsýni sem slær út öll heimsins listaverk. Húsið er stílhreint en á sama tíma afar hlýlegt og ljóst að nostrað hefur verið við hvern krók og kima. Afar sérstök listaverk prýða veggina og kerti, dúkar, púðar og teppi skapa notalega stemningu.

Anna tók vel á móti blaðamanni og segir honum frá því hvernig bandarísk kona endaði á hjara veraldar þar sem hún er á kafi í hönnun og verslunarrekstri, auk þess að ala upp börnin tvö, Óðin og Sóleyju.

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Íslenskur lífsstíll fyrir börnin

Anna er menntuð í innanhússhönnun og textílhönnun, en einnig er hún með gráðu í heilbrigðismannfræði.

„Ég lærði það fyrst en fór svo til Los Angeles til að sinna listrænu hliðinni minni, en ég hef alltaf haft mikla sköpunarþörf. Ég fór þangað í leit að vinnu í kvikmyndabransanum og byrjaði að vinna við hönnun á kvikmyndasettum. Ég vann þá með listræna stjórnandanum við að skapa sjónrænt útlit myndar eða auglýsingar,“ segir hún.

„Ég vann um skeið í hönnunarverslun í Beverly Hills sem var fín leið til að kynnast listrænum stjórnendum kvikmynda. Það vildi svo til að árið 2001 réð Íslendingur mig til að vinna fyrir sig. Atli var tónskáld myndarinnar,“ segir Anna og þar með voru örlög hennar ráðin.

Hjónin bjuggu lengi vel í Los Angeles en árið 2015 ákváðu þau að flytja til Akureyrar, heimabæjar Atla.

„Ég hef áður búið mjög afskekkt og kann vel við mig á fáförnum stöðum. Við áttum yndislegt líf í Los Angeles og ekki yfir neinu að kvarta nema umferðinni. En lífsstíllinn þar er allt annar en við vildum bjóða börnunum okkar upp á; við vildum vera nær náttúrunni. Þannig að mér líður vel á hjara veraldar. Það var í raun mín hugmynd að flytja hingað. Við áttum hér lengi afdrep og eyddum hér öllum sumrum og fríum, en Atli flakkaði þá á milli landa að vinna. Ég fann að ég vildi ekki fara héðan.“

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hús sem á að endast

Hjónin festu kaup á húsi, ef hús skyldi kalla, því einungis var búið að steypa grunn, veggi og þak. Allt annað var eftir. Það hentaði Önnu vel, því þá gat hún ráðið hönnun hússins frá a til ö.

„Ég vann í upphafi með arkitekt hússins. Húsið var byggt á góðærisárinu 2007 en aldrei klárað og það stóð hér óklárað í átta ár. Þá keyptum við það, en það var útsýnið sem heillaði,“ segir hún en horfa má úr stofunni yfir Eyjafjörðinn.

„Svo var hér fullkomin aðstaða fyrir Atla að hafa stórt stúdíó, því gert var ráð fyrir aukaíbúð á neðri hæð,“ segir hún.

„Þetta tók mig fjögur ár. Ég var hér nokkrum sinnum á dag, hannaði og teiknaði langt fram á nætur og fann sjálf allt efni, allt niður í minnstu skrúfur. Þetta var mikil vinna. Ég er fylgjandi „slow“-hreyfingunni og trúi því að ef maður byggir hús eigi maður að byggja það til að endast. Húsið er viðhaldsfrítt og byggt úr náttúrulegum efnum. Það er hvergi plast í mínu húsi, ekki einu sinni í eldhúsinu. Svona verður húsið á meðan ég lifi,“ segir hún.

„Sem hönnuður vil ég leggja áherslu á að vinna með umhverfinu. Fyrst og fremst vildi ég ekki að neitt skyggði á útsýnið. Ég lét gólfið vera grátt í stíl við fjörðinn fyrir utan gluggann og í loftinu er viður, sem er óður til fortíðar, en á nútímalegan máta. Það hefur einnig þann tilgang að hafa góðan hljómburð,“ segir hún en vitanlega skiptir það máli í húsi tónskálds.

„Húsið er byggt í funkisstíl, en ég breytti því aðeins þannig að það fékk á sig módernískara yfirbragð, í anda húsa frá því um miðja síðustu öld.“

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Náttúran í fyrirrúmi

Fyrir ári opnaði Anna konseptbúðina Fjord í miðbæ Akureyrar. Við kíkjum þar inn og Anna sýnir blaðamanni afar fallegar og náttúrulegar vörur.

„Það gekk vel fyrir jólin í fyrra. Svo kom Covid. En ég hef notað tímann til að komast að því hvað virkar og hef verið að þróa hvaða vörur ég set í búðina og í netsölu, en ég var að setja vefsíðu í loftið, fjordhome.is. Það er alltaf nóg að gera hjá mér, en ég er með lokað núna vegna Covid. Búðin er lítil og ég vil sýna samfélagslega ábyrgð,“ segir hún.

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

„Vörurnar mínar eru allar unnar með sjálfbærni og umhverfismál í huga. Þar kemur aftur að „slow“-lífsstílnum. Kannski þurfum við öll að spóla aðeins til baka og huga að náttúrunni. Ég hef alltaf viljað þróa mína eigin línu og er til að mynda með mikið af sjálfbærum textíl frá Belgíu. Ég er einnig með kerti úr býflugnavaxi sem brenna í 70 klukkutíma. Svo vinn ég mikið með listamönnum hér, eins og leirlistakonunni Margréti Jónsdóttur. Hún er ótrúlega hæfileikarík. Ég vinn líka náið með hönnuðinum Ingibjörgu Guðmundsdóttur en hún er með búð sem er samliggjandi Fjord og heitir Cave Canem. Ég sel nokkar vörur frá henni en list hennar er einstök. Ég er að byggja upp línuna mína smátt og smátt,“ segir Anna.

„Þegar ég horfi til baka yfir allt það sem ég hef lært í lífinu, allt frá mannfræði og hönnun til flakks á flóamörkuðum í Frakklandi, sé ég að það hefur leitt mig hingað, í Fjord. Ég myndi engu vilja breyta.“

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál