Þetta finnst Katrínu best við að búa í blokk

Katrín Jakobsdóttir býr í blokk.
Katrín Jakobsdóttir býr í blokk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býr í blokk á Dunhaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Katrín er sátt við að búa í því mikla návígi við annað fólk sem fylgir búsetu í blokk og virðist líta á það sem kost frekar en annað. Katrín fór yfir kostina á Instagram.

„Að þínu mati, hvað er best við að búa í blokk?“ spurði fylgjandi Katrínar á Instagram. „Það besta við að búa í blokk er að búa með öðru fólki, búa með frábærum nágrönnum og bera sameiginlega ábyrgð. Allavega, mér finnst það frábært,“ svaraði Katrín. 

Blokkin sem Katrín býr í ásamt eiginmanni sínum og þremur sonur var byggð árið 1957. Minni íbúðirnar í blokkinni eru 99 fermetrar en þær stærri eru 108 fermetrar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál