Sex atriði sem draga úr verðmæti fasteigna

Ljós og björt rými í hlutlausum litum eru afar söluvænleg.
Ljós og björt rými í hlutlausum litum eru afar söluvænleg. Unsplash.com

Í samkomubanni á tímum kórónuveirunnar hafa margir beint sjónum að heimilinu og gert það upp. Sérfræðingar vara fólk þó við nokkrum atriðum sem gætu dregið úr sölugildi fasteigna.

1. Að gera allt sjálf

„Það er auðvelt að sjá strax þau verk sem eru framkvæmd af viðvaningi. Stundum er betra að fá fagfólk til þess að tryggja gæðin,“ sagði Thomas Goodman sérfræðingur í fasteignum. „Slíkt dregur úr verðmæti fasteignarinnar til langs tíma litið. Þér finnst flísalögnin þín kannski líta vel út en það kemur ekki sama yfirbragð og þegar flísameistari á í hlut. Svona sparnaður ásækir mann síðar því fólk notar það gegn manni til þess að semja um lægra verð.“

2. Litrík heimili geta fælt kaupendur frá

Skærir litir eru ekki fyrir alla og geta fælt kaupendur frá. „Þér gæti þótt skærgult eldhús vera yndislegt og hlýlegt en aðrir sjá það í öðru ljósi. Það er best að halda innviðum stílhreinum og forðast allt sem stingur í stúf,“ segir Goodman og bendir á að ljósgráir og ljósbrúnir tónar séu öruggastir.

3. Gömul eldhús

Eldhúsið ræður miklu um sölugildi fasteigna og það er erfitt að uppfæra eldhús án þess að kosta miklu til. En lykilatriði er að hafa það nútímalegt til að laða kaupendur að. Þá getur það fælt frá ef fólk sér hvað þarf að gera mikið fyrir eldhúsið. 

„Ef þú átt ekki fjármuni til þess að endurnýja eldhús frá grunni skaltu einbeita þér að borðplötunni, skápum og blöndunartækjum. Hafðu það í hlutlausum litum og passaðu að það sé tandurhreint. Sérstaklega eldavélin.“

4. Ólík gólfefni

Það þarf að passa upp á heildarútlit fasteignarinnar. Ekki hafa of mikið af ólíkum stílum í gangi. Það á sérstaklega við um gólfin. 

„Þér kann að líka við teppin á efri hæðinni en við mælum alltaf með viðargólfum og þá sérstaklega á aðalhæðinni. Gangar, stofur og önnur fjölskyldurými ættu að hafa sama gólfefni. Algengustu mistökin eru að hafa tvær ólíkar tegundir af viðargólfum á aðalrýmunum. Ef þú ætlar að skipta um gólfefni einhvers staðar, passaðu þá upp á að eiga fyrir allri hæðinni.“

5. Dökkir veggir

Svartur er alltaf mjög krefjandi litur á veggjum en það getur líka átt við um bláan og fjólubláan.

„Dökk herbergi geta verið mjög óaðlaðandi. Björt herbergri með góðri lýsingu eru strax mun meira aðlaðandi. Hafðu herbergin í ljósum litum með góðri lýsingu.“

6. Baðherbergið

Baðherbergi geta elst fljótt og látið á sjá enda mæðir mikið á þeim. Ef þú getur ekki gert upp baðherbergi frá grunni skaltu passa að fúgurnar séu hreinar og blöndunartækin nýleg og falleg. „Margir gera þau mistök að fjarlægja eina baðkarið á heimilinu. Baðkör eru vinsæl hjá fólki sem sér fyrir sér að slaka á í baði eftir erfiðan vinnudag. Það getur því minnkað kaupendahópinn ef þú fjarlægir baðkarið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál