Kærustuparið Hersir Aron Ólafsson og Rósa Kristinsdóttir hafa ákveðið að setja íbúð sína við Njálsgötu á sölu. Íbúðin er 78 fm að stærð og var húsið sjálft, sem íbúðin stendur í, byggt 1952. Íbúðin er þriggja herbergja með einu svefnherbergi.
Hersir og Rósa eru bæði lögfræðingar og hafa búið sér notalegt umhverfi. Hann er aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Rósa starfar hjá Akta sjóðum hf.
Hvíti liturinn er áberandi á heimilinu ásamt gráum tónum. Í borðstofunni eru bláir flauels-borðstofustólar sem fara vel við hvítt sprautulakkað borð og Kartell-loftljós.
Eins og sjá má á myndunum er heimilið stílhreint og huggulegt.