Mikil spenna á fasteignamarkaði

Heimir Bergmann fasteignasali.
Heimir Bergmann fasteignasali.

Heimir Bergmann, fasteignasali og eigandi Lögheimilis Eignamiðlunar, býr á Akranesi ásamt syni sínum. Hann segir að það sé mikil spenna á fasteignamarkaði vegna þess að eftirspurn er meiri en framboð þegar kemur að húsnæði. 

Heimir hefur starfað við fasteignasölu í rúmlega áratug. Hann segir að starfið sé fjölbreytt og hann viti oft ekki hvað dagurinn muni bera í skauti sér.

Þegar hann er spurður að því hvað sé mest spennandi við starfið segir hann að það sé að geta glatt fólk.

„Eitt símtal sem getur leitt mig að skoða draumaeign viðskiptavinar sem ég hef verið að leita að eign fyrir. Það eru margir viðskiptavinir mínir í gegnum árin sem hringja í mig og biðja mig um að finna draumaeignina þeirra. Það mætti segja að það væri það sem er mest spennandi við starfið. Orðsporið í fasteignasölu skiptir svo miklu máli og ég hef verið svo heppinn að eignast stóran hóp viðskiptavina sem vísa vinum og kunningjum á mig og því er ég alltaf að heyra í og aðstoða nýja kaupendur ásamt því að aðstoða þá sem hafa verið traustir viðskiptavinir um árabil,“ segir hann.

Er hægt að selja allar eignir á núll einni?

„Nei ég get ekki sagt það. Þótt það komi oft fyrir að eign seljist nánast áður en hún fer á netið. Það er þó nokkur eftirspurn eftir sérbýlum og 2 til 3 herbergja íbúðum í flestum hverfum sem fara þá mjög fljótt og fá þá oft færri en vilja þá eign. Það eru fyrst og fremst þessir þættir sem valda þessari miklu eftirspurn. Of lítið hefur verið byggt af sérbýlum á síðastliðnum árum. Einnig hafa lágir húsnæðisvextir og aukinn kaupmáttur hjá mörgum kaupendum hjálpað til. Þetta er samt óvenjuskökk mynd miðað við undanfarin ár því eftir að Covid skall á varð mikið högg á vinnumarkaði víða, þó ekki í öllum landshlutum. Fólk er að vinna meira að heiman og því minni kostnaður í ferðir til og frá vinnu. Það eru því margir þættir sem spila inn í hvernig sambandið er milli framboðs og eftirspurnar á fasteignamarkaði.“

Hvað þarf eign að hafa til að bera til þess að seljast fljótt og örugglega?

„Þessi spurning fær ekkert eitt svar. Grunnþættirnir eru oftast þeir sömu. Eignin þarf að vera í rétta hverfinu og á rétta verðinu. Gott skiplag bæði innan og utan sem og gróið og barnvænt hverfi þegar kaupendur eru fjölskyldufólk. Þetta er svona hin dæmigerða vísitölu eign.“

Hvernig er fasteignamarkaðurinn að þróast?

„Ég sé hann þróast þannig að yngra fólk fer að færast meira í úthverfin og þá meira í nágrannasveitarfélög höfuðborgarsvæðisins. Það virðist langur vegur í að Reykjavík, Kópavogur og Garðabær komi með nægjanlegt magn lóða til að byggja á.“

Ef fólk er að velta fyrir sér að flytja, ætti það að gera það strax eða bíða?

„Ef um fyrstu kaupendur er að ræða þá klárlega er það núna, mjög góð kjör í boði fyrir fyrstu kaupendur víða, þó ekki alls staðar. Þá er ég að tala um nýja úrræði HMS í hlutdeildarlánum. Ef spurningin er frá fólki sem á íbúð sem þarf að selja og kaupa annað þá í flestum tilfellum skiptir það kannski ekki alveg máli því þær eignir haldast saman í verði að mestu leyti og hækka báðar. Ég get ekki séð að verð á fasteignum sé að lækka þegar eftirspurn er meiri en framboðið.“

Hvernig er með þig sjálfan, flytur þú oft eða hefur þú búið á sama staðnum lengi?

„Ég, ásamt syni mínum sem er að verða 17 ára, hef búið á Akranesi, sjálfum Floridaskaganum, á frábærri hæð með útsýni úr stofunni yfir Faxaflóa og upp að Esjunni. Við erum nánast á Langasandi og ég sofna með fögur ljósin frá stórhöfuðborgarsvæðinu og vakna svo við sólarupprásina. Við vorum áður í annarri eign hér á Akranesi sem við tókum í gegn sem ég seldi. Þegar ég kom að skoða núverandi eign og gekk inn í stofu og sá þetta óhindraða útsýni þá var það engin spurning, hér vildi ég búa.

Það koma margar eignir til greina að flytja í þegar að þú skoðar tugi íbúða á viku. Ég fæ jafnmargar hugmyndir með mína að breyta og bæta. Þá stoppar maður og bíður jafnvel og hugsar, ég ætti kannski að selja og kaupa þessa. Það eru alveg eignir hér á Akranesi sem eru að fara í byggingu sem ég myndi vilja eignast. Svo festi ég kaup á íbúð á Spáni, þar er gott að vera og ég stunda uppáhaldsafþreyinguna mína þar, golfið, þegar tækifæri gefst til.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál