Meiri hvati til að selja sumarhúsið

Sum­ar­hús við Þing­valla­vatn sem arki­tekt­arn­ir Kristján Eggerts­son og Kristján Örn …
Sum­ar­hús við Þing­valla­vatn sem arki­tekt­arn­ir Kristján Eggerts­son og Kristján Örn Kjart­ans­son hjá arki­tekta­stof­unni KRADS hönnuðu. Tón­list­ar­hjón­in Tina Dic­kow og Helgi Hrafn Jóns­son búa í húsinu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Marinó Thorlacius

Þessi breyting hefur verið í umræðunni í svolítinn tíma svo margir sumarhúsaeigendur hafa haldið að sér höndum og verið að bíða eftir því hvort þetta gengi í gegn eða ekki. Og nú þegar þessi lagabreyting er orðin að veruleika er vissulega mun söluvænna fyrir ákveðinn hóp að selja sumarhúsið sitt en áður,“ segir Heimir Hafsteinn Eðvarðsson, fasteignasali hjá fasteignasölunni Fasteignalandi. Í stuttu máli felst breyting í því að sumarhúsaeigandi sem ákveður að selja sumarhúsið sitt, ef hann hefur átt það í sjö ár eða lengur og hefur ekki haft tekjur af því á þeim tíma, þarf ekki að greiða fjármagnstekjuskatt af hagnaðinum sem kann að hafa myndast. Gildir þetta frá 1. janúar 2020 og á því við um allar sumarhúsasölur á síðasta ári.

Mun hafa áhrif

„Þetta getur til dæmis haft gríðarlega mikið að segja fyrir fólk á lífeyri því söluhagnaðurinn er ekki lengur flokkaður sem tekjur. Það kemur í veg fyrir að lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun skerðist, eins og raunin hefur verið hingað til,“ segir Heimir. Hann á von á því að þessi breyting ýti við mörgum í þessum hópi og flýti fyrir ákvarðanatöku varðandi sölu. „Við hér hjá Fasteignalandi höfum verið að fá töluverðar fyrirspurnir um þessa lagabreytingu svo það eru margir sem eru að hugsa málið og velta fyrir sér hvort nú sé ekki rétti tíminn til þess að setja sumarhúsið á sölu.“ Heimir segir að honum finnist ekki ólíklegt að það verði töluverð hreyfing á sumarhúsamarkaðinum með hækkandi sól.

Áframhaldandi góð sumarhúsasala

„Margir eldri sumarhúsaeigendur hafa haldið sig innandyra vegna heimsfaraldursins en ég á von á því að með vorinu þá fari hluti þeirra að huga að sölu, enda breytir þessi lagabreyting mjög miklu fyrir mjög stóran hóp.“ Hann segir að á síðasta ári hafi reyndar verið mjög góð sala á sumarhúsum á Íslandi þegar ferðalög erlendis minnkuðu og landinn fór að hugsa meira um upplifanir innanlands.

„Það hafði verið smá lægð í sölu sumarhúsa þar á undan en jókst svo aftur með tilkomu Covid og ég á von á því að þessi ásókn Íslendinga í sumarhús haldist óbreytt í ár.“

Ljósmynd/Marinó Thorlacius
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál