Tekk- og fasteignanörd í Garðabæ

Óli Gísli Sveinbjörnsson
Óli Gísli Sveinbjörnsson Arnþór Birkisson

Óli Gísli Sveinbjörnsson, fyrrverandi matreiðslumaður og núverandi fasteignasali, hefur „thing“ fyrir því að halda fallegum og vönduðum hlutum í sinni upprunalegu mynd. Hann segist líka elska að taka þátt í stóru stundunum í lífi fólks, á borð við brúðkaup, fermingarveislur og kaup á fyrsta heimili. 

Óli Gísli segir að á margan hátt sé starf matreiðslumannsins líkt starfi fasteignasalans því hvort tveggja séu þetta þjónustustörf sem gangi út á fjölbreytt verkefni og samskipti við fólk.

„Ég var aldrei að fást við sömu verkefnin og ég hitti ógrynni af alls konar fólki þegar ég var í hlutverki matreiðslumannsins. Svo fór ég frá því að elda og taka þátt í brúðkaupum og fermingarveislum yfir í að deila stóru stundinni þegar fólk kaupir sér nýtt heimili. Það er gaman að fá að taka þátt í svona stórum stundum með alls konar fólki,“ segir Óli Gísli sem skipti um starfsvettvang árið 2006. Þá hætti hann að starfa sem matreiðslumaður og fór á fullu í fasteignasöluna en undanfarin ár hefur hann starfað á eigin fasteignasölu, Höfn.

„Ég skilgreini mig sem fasteignanörd, er alltaf að skoða fasteignaauglýsingar, fletta Bo Bedre og svona. Ég kem inn á aragrúa af heimilum og oft fær maður að heyra sögur sem fylgja húsum. Hús er ekki alltaf bara steyptur kassi heldur hafa sögur lifað inni í þeim, sögur af fyrri eigendum og margt fleira,“ segir Óli Gísli kíminn.

Óli Gísli Sveinbjörnsson
Óli Gísli Sveinbjörnsson Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson

Lét flytja inn gegnheilt tekk í eyjuna

Sjálfur býr Óli í hundrað og fimmtíu fermetra einbýli í Túnunum í Garðabæ en það er eitt elsta hverfi bæjarins, og það fyrsta sem var skipulagt í bænum, vill Óli meina en hann biður Garðbæinga að nota það ekki gegn sér ef rangt reynist.

„Húsið mitt er byggt árið 1958 og það var hannað af þeim Jósep Reynissyni og Gísla Halldórssyni. Ég keypti það af upprunalegum eigendum sem lögðu alltaf mikla alúð í húsið. Það var vandað til verka með þetta hús og ekki verið að eltast við tískusveiflur,“ segir hann sáttur.

„Til að flokka mig áfram sem nörd þá er ég örugglega svona retró-tekk-nörd líka,“ segir hann og útskýrir að hann hafi þurft að standa af sér mikla pressu frá velmeinandi vandamönnum gagnvart því að breyta ekki panelnum í loftinu.

„Fólk er alltaf að koma með hugmyndir um hvernig sé hægt að mála og breyta en ég mun ekki hrófla við loftinu. Viðurinn er hluti af húsinu,“ segir Óli sem gekk svo langt að panta inn tekk frá útlöndum þegar hann stækkaði eldhúsið á sínum tíma.

„Gamla eldhúsið var mjög lítið en í breytingunum þurfti ég að láta taka út litla upprunalega innréttingu úr tekki. Til að skemma ekki stílinn hafði ég mikið fyrir því að finna, og láta flytja inn, gegnheilt tekk í eldhúseyjuna og eftir mikla leit var það efnisveita í Kópavogi sem hafði upp á því fyrir mig. Eftir á get ég sagt að það er reyndar ekki mjög praktískt að nota tekk sem vinnuborð, en á móti myndast falleg tenging við húsið sem mér finnst skipta máli.“

mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is/Arnþór Birkisson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál