Íris Björk Tanya Jónsdóttir, eigandi Vera Design, hefur sett heimili sitt í Vesturbæ Reykjavíkur á sölu. Um er að ræða glæsilega hæð og ris á besta stað í bænum. DV greinir frá.
Íbúðin er 173 fermetrar að stærð og er hún nýlega uppgerð. Hinn glæsilegi stíll Írisar Bjarkar svífur yfir vötnum í íbúðinni. Þrennar svalir eru í íbúðinni, þar á meðal þaksvalir með heitum potti.
Heimilið er smekklega innréttað og hvert húsgagn og mubla valin af kostgæfni. Stofan er máluð í svörtum lit sem fer vel saman með borðstofuborðinu. Í eldhúsinu er falleg svört innrétting með viðarborðplötum. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni og eru þau nýuppgerð.
Ásett verð 124.900.000 krónur.