Smekklegur sumarbústaður í Kjósinni

Sumarbústaðurinn er á fallegri lóð í grennd við Meðalfellsvatn í …
Sumarbústaðurinn er á fallegri lóð í grennd við Meðalfellsvatn í Kjós.

Það er fátt betra en að slappa af í sumarbústað um hásumar á Íslandi. Í Kjós er að finna sjúklega smekklega innréttaðan sumarbústað til sölu. Um er að ræða 125,7 fermetra heilsárshús rétt við Meðalfellsvatn. 

Húsið stendur á rúmlega 3 þúsund fetmetra eignarlóð og því tækifæri til að gera ýmislegt á lóðinni, til dæmis að halda gott ættarmót. Ásett verð er 69.900.000 krónur.

Stór pallur er við húsið og heitur pottur er á honum. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu. Í eldhúsinu er einstaklega falleg svört innrétting, með eyju og amerískur ísskápur fylgir með.  

Af fasteignavef mbl.is: Nesvegur 4

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál