Elísabet og Gunnar keyptu einbýli í Skerjafirði

Gunnar Steinn Jónsson og Elísabet Gunnarsdóttir eru flutt heim til …
Gunnar Steinn Jónsson og Elísabet Gunnarsdóttir eru flutt heim til Íslands eftir áralanga búsetu erlendis.

Elísabet Gunnarsdóttir, bloggari á Trendnet.is, og handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hafa fest kaup á dásamlega fallegu einbýli í Skerjafirði. Húsið er 207 fermetrar að stærð, byggt árið 1932. 

Elísabet og Gunnar fluttu heim til Íslands í sumar eftir áralanga búsetu erlendis. Þau hafa verið búsett í Esbjerg í Danmörku undanfarin ár en Gunnar lék í vor með þýska 1. deild­arliðinu Göpp­ingen. Hann gerði samning við Stjörnuna og því er fjölskyldan að flytja heim. 

Elísabet hefur sýnt frá framkvæmdum við húsið á Instagram í vikunni og virðast þau hjónin ætla að hressa upp á það. Húsið er á tveimur hæðum og með kjallara. Það var lengi á sölu en er nú komið í hendurnar á fólki sem veit hvað það syngur þegar kemur að því að búa sér fallegt heimili. 

Hjónin, sem fögnuðu þriggja ára brúðkaupsafmæli í sumar, áttu lengi vel eign hér á Íslandi. Hana seldu þau í byrjun síðasta árs en á því heimili skein skandínavískur stíll Elísabetar algjörlega í gegn. 

Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
Ljósmynd/Fasteignaljósmyndun.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál