Tónlistarmaðurinn Guðni Franzson og danshöfundurinn Lára Stefánsdóttir hafa sett fallega íbúð sína í Vesturbænum á sölu. Íbúðin er 154 fermetrar á annarri hæð á besta stað í 107 Reykjavík.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og heillandi upprunalegt eldhús. Bílskúr fylgir með íbúðinni en þar hefur nú verið innréttuð stúdíóíbúð. Ásett verð er 94,9 milljónir.
Ekki fer á milli mála að listafólk býr á heimilinu. Guðni er ekki bara farsæll tónlistarmaður heldur er hann einnig faðir Hildar Guðnadóttur. Hildur hefur sópað að sér verðlaunum fyrir kvikmyndatónlist, þar á meðal Óskarsverðlaunum í fyrra fyrir tónlist sína í Jókernum. Guðni stýrði SinfoniuNord þegar hljómsveitin flutti tónlistina við Jókerinn á tónleika-bíósýningu í Eldborg fyrr í október.