Fór krókaleið að draumnum

Nína Óskarsdóttir listakona býr til skemmtilega skúlptúra.
Nína Óskarsdóttir listakona býr til skemmtilega skúlptúra. Árni Sæberg

Nína Óskarsdóttir myndlistarmaður gerir skemmtilega og skrýtna skúlptúra. Hún hefur alltaf verið listræn en prófaði nokkrar námsleiðir áður en hún fann sig í myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Nína einbeitir sér alfarið að myndlistinni núna og á listamannalífið vel við hana. 

„Ég hef alltaf verið skapandi og ákvað mjög ung að verða myndlistarmaður, löngu áður en ég skildi hvað það væri í rauninni. Ég tók hins vegar smá krókaleið að því, fór á náttúrufræðibraut í MR sem var mikill misskilningur, þrátt fyrir að ég hafi staðið mig ágætlega þar. Eftir menntó fór ég svo í Hússtjórnarskólann í Reykjavík, vann sem sushikokkur í nokkur ár og hóf meira að segja nám í fatahönnun en áttaði mig fljótlega á því að mín rétta braut í lífinu væri í myndlistinni, eins og ég hafði alltaf verið viss um sem barn,“ segir Nína þegar hún var spurð hvort það hafi alltaf legið beint við að fara í listnám. Hún útskrifaðist með bæði BA-gráðu og MA-gráðu frá Listaháskóal Íslands. 

Verk Nínu lifna við með blómum og kertum.
Verk Nínu lifna við með blómum og kertum. mbl.is/Árni Sæberg

Það má greina húmor í litríkum verkum Nínu. Skúlptúrar hennar eru meðal annars að finna í hversdagslegum aðstæðum á heimilum fólks en henni finnst gaman að tengja myndlistina inn á heimilið. 

„Verkin mín eru skúlptúrísk og ég vinn mest í steinleir sem ég brenni og glerja. Ég hef mjög gaman af því að leika mér með efnið sjálft og reyni að ögra því sem tæknin segir mér að sé ekki hægt og ég held að það sjáist vel í mínum verkum. Þau eru litrík og kræklótt og skrýtin og dansa oft á milli þess að vera skúlptúrar og nytjahlutir eins og vasar eða kertastjakar. Hvert verk þarf að geta staðið sjálft sem skúlptúr en mér finnst mjög áhugavert að tengja skúlptúrinn inn á heimilið með því að koma honum í kunnuglegra hlutverk, það er að segja að hann lifni einhvern veginn við með kertaljósi eða afskornum blómum. Hvert verk er handmótað og ég set mér það oft sem markmið að ég verði að prófa eitthvað nýtt í hverju einasta verki. Ég sæki innblástur í fagurfræði heimilisins og þeirra menningartengdu og trúarlegu athafna sem eru okkur mikilvæg innan þess. Ég er mjög heilluð af hugmyndinni um heilagleika og er það hugtak sem ég er stöðugt að velta fyrir mér og uppgötva nýjar hliðar á.“

Óvenjulegur skúlptúr Nínu.
Óvenjulegur skúlptúr Nínu. mbl.is/Árni Sæberg

Hvernig er venjulegur dagur í þínu lífi? 

„Dagarnir eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Ég á erfitt með að drífa mig út úr húsi á morgnana og tek því góða stund í að drekka morgunkaffibollann áður en vinnudagurinn hefst. Stundum fer ég beint á vinnustofuna eftir morgunmat og dvel þar mislöngum stundum. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að ég sé búin að setja mig í réttar stellingar áður en ég byrja að skapa, ég þarf að vera búin að koma öllu frá sem gæti truflað eða dreift huganum. Andrúmsloftið á vinnustofunni þarf að vera þannig að ég geti gleymt stað og stund þannig að það er ekki alltaf hlaupið að því. Sumir dagar fara í endalaust stúss þar sem maður flakkar borgina enda á milli og suma daga þrái ég svo bara góðan félagsskap eða kaffihúsahangs og ég reyni þá að láta það eftir mér.“

Nína hugsar um verkin sín sem myndlist en ekki sem hönnun. Hún bendir þó á að ekki sé alltaf auðvelt að gera greinarmun á hönnun og myndlist. 

„Verkin mín eru myndlistarverk eða skúlptúrar. Jafnvel þó að þau hafi oft eitthvað notagildi þá sé ég þau alltaf sem skúlptúra, sem myndlistarverk. Það er kannski ekki alltaf nauðsynlegt að gera greinarmun milli hönnunar og myndlistar og það eru margir listamenn sem vinna jafnt beggja megin við línuna en fyrir mig sem listamann er það mjög skýrt að það sem ég geri er myndlist. Það eru einhverjir straumar í loftinu núna hvað varðar leirlist og ég held að það sé að koma til baka að fólk kunni að meta handverkið sem felst í henni. Það er alveg ómetanlegt að eiga hlut sem er algjörlega einstakur, sem unninn hefur verið í höndunum á listamanni og fólk er opnara fyrir því en áður. Það eru einhverjir töfrar í leirnum sem erfitt er að útskýra en maður laðast bara einhvern veginn að honum og því meira sem maður sér af leirlistaverkum því meira heillast maður að þeim. Leirverk hafa alltaf verið tengd heimilinu og þrátt fyrir að vera brothætt eru þau líka með endingarbestu efnum sem við eigum á jörðinni.“

Nína Óskarsdóttir listakona
Nína Óskarsdóttir listakona mbl.is/Árni Sæberg

Finnst þér vera pressa að gera söluvænlega list?

„Nei, ég myndi nú ekki segja það þótt það sé vissulega eitthvað sem ég velti fyrir mér. Það skiptir alltaf mestu máli að fylgja hjartanu og innsæinu við listsköpun. Í mínu tilfelli er það forvitnin sem leiðir mig áfram og ég er stanslaust á einhvers konar ferðalagi með listinni minni, að gera tilraunir og ýmsar uppgötvanir. Þetta er mjög persónulegt ferli og maður vonast til að snerta einhverja strengi í öðrum á meðan á leiðinni stendur. Ég held að það væri ekki heillavænlegt að reyna að eltast við það sem maður telur vera söluvænlegt hverju sinni. Það er alltaf ánægjulegt þegar fólk heillast af því sem maður gerir og er tilbúið að fjárfesta í því en það er ekki það sem drífur mig áfram í sköpuninni. Það virðist vera mikil uppsveifla í því að Íslendingar séu spenntir yfir því að kaupa myndlist og maður tekur því opnum örmum.“

Ljósmynd/Nína Óskarsdóttir

Hvernig verður árið 2022?

„Ég er mjög spennt fyrir þessu ári sem er rétt að hefjast og ég ætla að byrja árið á að eyða miklum tíma á vinnustofunni minni. Ég er búin að vera svo upptekin undanfarið þannig að ég hef svo margar hugmyndir sem mig langar að koma í framkvæmd og rannsaka nánar. Ég held að tíminn sé eitt það dýrmætasta sem maður á sem listamaður og blessunarlega þá get ég helgað mig listinni næstu mánuði. Svo mun ég setja upp sýningar seinna á árinu og vonandi tekst mér að fara í vinnuferðir erlendis. Það er alltaf svo mikið til að grúska í og ég hlakka til að fá tíma til að leyfa forvitninni að leiða mig áfram í gegn um árið.“

Ljósmynd/Nína Óskarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál