„Speglar stækka rýmið og gera allt fallegra“

Svava Guðrún Helgadóttir býr í fallegri íbúð á Álftanesi ásamt manni sínum og dóttur. Hún segir að rólegt umhverfi og falleg náttúra sé einkennandi fyrir staðinn sem hún býr á. 

ég var nýverið að klára fæðingarorlof þar sem ég hafði færi á því að vera lengi heima með dóttur minni. Þetta var dýrmætur tími sem kemur víst ekki aftur og ég er þakklát fyrir.

Um þessar mundir er ég í meistaranámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi og er að leggja drög að meistararitgerð minni á því sviði. Ég mun verja næstu mánuðum í skrif og er virkilega spennt fyrir því.“

Hvernig lýsir þú heimilinu þínu?

„Ég myndi fyrst og fremst segja að það væri mjög hlýlegt og notalegt. Það er svolítið skandinavískt í hönnun en mér finnst svo mikilvægt að upplifa hlýju þegar maður kemur inn í rými. Ég hef lagt áherslu á það á þeim stöðum sem við höfum búið á. Mér finnst mikilvægt að heimilið haldi utan um mann ef maður getur sagt sem svo og ég vona að það hafi tekist hjá okkur hingað til.“

Inni á heimilinu eru fallegir litir og einmitt þessi mýkt sem Svava Guðrún talar um að sé henni mikilvæg.

„Ég held að mýktin sé eitthvað sem ég hef þróað með mér undanfarin ár. Það tekur alltaf tíma að finna sinn eigin persónulega stíl. Umhverfi sem manni líður vel í og er heimilislegt.

Ég hef komist að því að ljósir, oft kremaðir litir í bland við fallegan við veita mér ákveðna hlýju.“

Svefnherbergið uppáhaldsstaðurinn

Svefnherbergið er uppáhaldsstaðurinn hennar í húsinu.

„Við biðum lengi með að gera svefnherbergið okkar notalegt í gömlu íbúðinni okkar og lofuðum okkur að það kæmi ekki fyrir aftur.

Við höfum því gert svefnherbergið nákvæmlega eins og við viljum hafa það. Bjart og fallegt og því er það klárlega uppáhaldsstaðurinn minn heima.“

Hvernig lýsir þú eldhúsinu ykkar?

„Eldhúsið okkar er partur af opnu rými. Eldhúsinnréttingin var öll í dökkum við þegar við fengum íbúðina en við ákváðum að filma hana alla hvíta sem kemur vel út að mínu mati.

Eldhúsið er í sjálfu sér ekki stórt en samt svo mátulegt fyrir litla fjölskyldu.“

Herbergin í húsinu eru rúmgóð og skemmtileg og vekur spegillinn inni í barnaherberginu sérstaka athygli.

„Þessi spegill er dásamlegur. Ég er bæði mjög mikið fyrir spegla og sömuleiðis skeljar og hann hafði að geyma hvort tveggja þannig að það kom ekki annað til greina en að kaupa hann um leið og ég sá hann. Hann er keyptur í barnavöruversluninni Petit og kemur frá merkinu Kongens Sløjd sem er danskt, afar vandað barnavörumerki sem ég er hrifin af.“

Hvað einkennir þitt heimili?

„Ég myndi segja að ég væri mikið í smáatriðunum. Mér finnst kerti, bækur, vasar, styttur og strá gera heilmikið fyrir heimilið og hef sankað að mér miklu af því á undanförnum árum. Til að mynda hef ég farið mikið í Góða hirðinn og keypt þar styttur sem prýða heimilið. Ég fæ oft spurningar tengdar þeim.

Ein þeirra er sem dæmi gerð úr marmara og er stytta af manni og konu. Hún er á skenknum inni í stofu. Mamma og pabbi eiga nákvæmlega eins styttu sem þau keyptu sér fyrir peninga sem þau fengu í brúðargjöf fyrir þó nokkuð mörgum árum. Ég keypti þar jafnframt dökkan blómastand, lakkaði hann hvítan og hef hann inni í stofu. Það er því hægt að eignast flotta hluti sem ekki endilega þurfa að kosta mikið hafi maður augun opin fyrir því. Þá finnst mér speglar ótrúlega mikilvægir fyrir heimilið. Þeir hafa stækkandi áhrif á rými og gera allt fallegra að mínu mati.“

Kommóðan frá ömmu í uppáhaldi

Hvað með baðherbergið og í skúffum og skápum; hvernig skipulag er þar?

„Ég er með flokkunarbox inni í öllum skápum á baðherberginu. Þar skipti ég niður húð- og hárvörum, mínum vörum, vörum mannsins míns og dóttur.“

Litirnir á veggjunum eru keyptir í Sérefnum.

„Við fengum mikla hjálp með litaval í Sérefnum sem og ráðeggingar um hvernig er best að lakka hurðir og skápa. Liturinn sem við völdum á alrýmið heitir Hop Greige. Hann er fallega kremlitaður grár litur sem við hrifumst strax af.

Inni í litla herberginu hennar Kristínar Bjargar er síðan liturinn Restful Melum sem er virkilega hlýlegur, bleikur litur. Við lökkuðum síðan allar hurðir og skápa hvíta, hálfmatta sem áður voru í dökkum lit. Við erum ennþá með bráðabirgðagardínur úr IKEA sem þó eru virkilega fallegar en erum búin að velja draumagardínurnar sem eru frá Hvítt.is. Þær munu ramma heimilið fallega inn og eru úr virkilega fallegu hvítgylltu efni. Ég hlakka mjög mikið til að sjá útkomuna þegar þær verða hengdar upp.“

Hvaða húsgagn þykir þér vænst um?

„Það er mjög falleg kommóða inni í svefnherbergi sem kemur frá ömmu minni heitinni sem ég var mjög náin.

Ég er að gæla við hvort ég eigi að lakka hana hvíta en hef ekki ennþá fengið mig til þess. Kommóðan er kannski ekki alveg í litnum sem ég helst hefði viljað hafa hana í en mér finnst hún samt passa eitthvað svo vel inn í mjúku litina inni í svefnherbergi og af því að hún kemur frá ömmu þá þykir mér hún ósjálfrátt fallegt.

Svo kemur hún frá ömmu og þá einhvern veginn ósjálfrátt verður hún falleg.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál