Högnuðust á rafsígarettum og keyptu 220 milljóna hús

Húsið við Frjóakur 7 í Garðabæ er nú í eigu …
Húsið við Frjóakur 7 í Garðabæ er nú í eigu Snorra Guðmundssonar og Auðar Ránar Kristjánsdóttur.

Parið Snorri Guðmundsson og Auður Rán Kristjánsdóttir hafa fest kaup á einbýlishúsi við Frjóakur í Garðabæ. Húsið er 338 fm að stærð og var byggt 2016. Parið borgaði 220 milljónir fyrir húsið. 

Í auglýsingu sem birtist á fasteignavef mbl.is í janúar segir að það eigi eftir að fullklára húsið að innan og var tekið fram að það væri bráðabirgðaeldhúsinnrétting í eldhúsinu. Aðalbaðherbergi hússins var ekki flísalagt og það átti eftir að ganga frá einhverjum lausum endum. 

Snorri og Auður Rán reka Fitjaborg ehf. Viðskiptablaðið sagði frá því fyrir um ári síðan að samanlagður hagnaður Fitjaborgar ehf. og Pólóborgar ehf. hafi verið 290 milljónir. Snorri rekur Pólóborg ehf. ásamt Sindra Þór Jónssyni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál