Áhrifavaldurinn og markaðsstjórinn Alexsandra Bernharð og Níels Adolf Sveinsson hafa sett íbúð sína í Garðabæ á sölu. Um er að ræða fallega og bjarta 112 fermetra íbúð í fjölbýlishúsi.
Alexsandra segir frá sölunni á Instagram og segir þau hafa tekið óvænta ákvörðun um að láta íbúð sína á sölu. Hún er áhrifavaldur og var nýverið ráðin sem markaðs- og viðskiptastjóri Hjá Höllu.
Parið gerði upp íbúðina að stórum hluta en í henni eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi.
Ásett verð er 64.900.000 kr.