Blómapottahvíslarinn frá Danmörku

Claus Dalby er samfélagsmiðlastjarna sem kennir fólki að gera fallegt …
Claus Dalby er samfélagsmiðlastjarna sem kennir fólki að gera fallegt í kringum sig. Ljósmynd/Instagram

Nú er tími sumarblómanna og fólk farið að huga að því að bæta við litríkum blómum í garðinn eða á svalirnar. Ljóst er að möguleikarnir eru svo miklu fleiri en bara einfaldlega að stinga blómunum niður í beð. Margir kjósa frekar að setja blómin í marga potta og raða þeim saman hér og þar. Einn sem náð hefur góðum tökum á þeirri listgrein er danski garðyrkjumaðurinn og nú samfélagsmiðlastjarnan Claus Dalby. 

Claus Dalby er gjarnan lýst sem Mörthu Stewart Skandinavíu. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir blómarækt þar sem hann leggur sérstaka áherslu á að rækta blóm í kerum, sem er sérstaklega hentugt þegar pláss er af skornum skammti. Hann hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem sístækkandi fylgjendahópur hans getur treyst á að fá andagift, hugmyndir og ráðleggingar af ýmsu tagi.
Ljósmynd/Instagram

Býður upp á fjölbreytta möguleika

Claus Dalby er mikill listamaður þegar kemur að því að raða saman mörgum blómakerum í öllum hugsanlegum litum. Það sem heillaði Dalby við að rækta blóm í kerum var hvað það býður upp á marga möguleika fyrir öll hugsanleg svæði, hvort sem er úti á svölum, í litlum garði eða stórum. Á síðasta ári gaf hann út bókina Containers in the Garden þar sem öll ráð hans og hugðarefni eru samankomin.

Ljósmynd/Instagram

Alltaf ein tegund í hverjum potti

Það sem vekur athygli er hvað Dalby setur í pottana. Venjulega freistast fólk til þess að raða saman nokkrum tegundum sumarblóma í einn stóran pott. Dalby kýs hins vegar að hafa eina tegund í potti og segir kostinn við það þann að þá er hægt að tryggja að uppstillingin líti alltaf vel út. Um leið og ein planta byrjar að fölna skiptir hann einfaldlega því keri út fyrir eitthvað annað sem er í blóma. Stundum raðar hann saman allt að tuttugu pottum og kerum en hann er þó ekki með tuttugu mismunandi blómategundir í þeim. Kannski sex til sjö tegundir blóma. Þannig nær hann fram ákveðinni endurtekningu sem gleður augað. Dalby leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að klippa af visnuð blóm bæði til þess að halda snyrtilegu útliti uppstillingarinnar en líka til þess að hvetja plönturnar til að framleiða fleiri blóm. Þetta ráð á ekki síður við um stjúpur eða fjólur.

Ljósmynd/Instagram
Ljósmynd/Instagram

Litur, lögun og áferð

Claus Dalby breytir litasamsetningu eftir árstíðum. Á vorin er guli liturinn ráðandi með einhverju sígrænu. Páskaliljur og túlípanar eru þá í forgrunni. Um sumarið fá bleiku litirnir að njóta sín og þá eru það dalíurnar sem taka við. En til að aðalstjörnurnar njóti sín sem best er hann með margar minna áberandi plöntur sem fylla upp í hið sjónræna rými. Til dæmis mælir Dalby með því að nota plöntur sem hafa límónugræn blöð til þess að para með dalíunum því það skapar skemmtilega andstæðu við dökk blöð dalíunnar. Þá er einnig skemmtilegt að hafa nokkrar háar plöntur í uppstillingunni. Hostur gætu verið tilvaldar í potta enda fást þær í mörgum mismunandi litum og stærðum en það þarf að vökva þær vel á sumrin. Á veturna tekur Dalby dalíurnar inn, hristir af þeim moldina og vefur laukunum inn í dagblöð. Svo geymir hann laukana á köldum stað, þar sem hitastigið fer ekki undir fimm gráður, til næsta vors.

Loks raðar Dalby blómapottunum hér og þar og stillir þeim upp í mismunandi hæð til þess að ná fram skemmtilegri stemningu. Dalby leggur mikla áherslu á lit, lögun og áferð plantnanna og byrjar strax á haustin að skipuleggja litaáherslur næsta árs. Þá gengur hann um með minnisbók með sér þar sem hann skráir niður allar þær hugmyndir sem hann fær meðan hann er að vinna í garðinum.

Hvar má nota blómapotta?

Vinsælt hefur verið að nota blómapotta til þess að ramma inn aðalinngang húss en þá má einnig nota til þess fylla í ákveðið tómarúm í görðum, búa til flotta uppstillingu eða bæta við lit þar sem vantar.

Athygli vekur að Dalby er duglegur að nýta sér hina og þessa hluti til þess að skapa mismunandi hæðir í pottauppstillingunum. Tröppur og bekkir eru augljósir kostir en svo má einnig notast við gamla viðarkassa eða mandarínukassa. Hægt er að bæsa þá í einhverjum lit eða bara hylja þá með efni ef þeir eru ekki mikið fyrir augað. Fyrir handlagna væri upplagt að útbúa bekki sem myndu þá líkjast tröppum og hægt væri að stilla upp fjölmörgum pottum þar á.

Ljósmynd/Instagram
Ljósmynd/Instagram

Það sem hafa þarf í huga

Það er margt að hafa í huga þegar tegundir eru valdar í blómaker. Sumar tegundir þrífast alls ekki vel í pottum eins og til dæmis flestar lyngrósir eða vissar trjátegundir. Best er að spyrja sérfræðinga í garðyrkjustöðvum áður en ráðist er í fjárfestingar sem þessar. Þá þarf að muna eftir að vökva vel blómakerin því moldin þornar hraðar þar en í dæmigerðum beðum. Loks er mikilvægt er að hafa bak við eyrað að garður verður ekki til á núll-einni heldur þróast hann með tíð og tíma. Fæstir fara frá því að eiga enga blómapotta í að eiga fjölmarga. Þetta tekur tíma og sjálfur er Dalby enn að bæta við sitt eigið safn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál