Heitustu stólarnir í dag

Samsett mynd

Stólar með ofnum reyr og pappa eru gríðarlega vinsælir í dag, enda gefa þeir heimilinu hlýlegan og notalegan blæ. Margir af fremstu húsgagnahönnuðum heims notast við þessa aldagömlu aðferð þar sem reyr eða pappa er ofið á setur eða bök stólanna. Það er óhætt að segja að ofnir stólar séu bæði klassískir og tímalausir, en margir þeirra eiga sér langa sögu.

Ofinn reyr varð fyrst vinsæll efniviður í stóla og sófa árið 1715. Reyr er planta sem er þekkt fyrir að vera sveigjanleg, sterk og endingargóð og hentar því sérlega vel í stóla.

Árið 1859 smíðaði Michael Thonet hinn goðsagnakennda kaffihúsastól, Konsumstuhi Nr. 14 sem nýtur enn þann dag í dag mikilla vinsælda um allan heim. Stóllinn er einnig merkilegur fyrir þær sakir að hann er fyrsta húsgagnið sem var fjöldaframleitt.

Flestir kannast við kaffihúsastólinn fræga, en í dag eru til …
Flestir kannast við kaffihúsastólinn fræga, en í dag eru til ýmsar útfærslur af stólnum. Ljósmynd/Epal.is

Glæsilega J39 stólinn er að finna á mörgum fallegum heimilum, en þar að auki prýddu þeir Hallgrímskirkju í þónokkur ár. Stóllinn var hannaður árið 1947 af Børge Mogensen og er úr olíuborinni eik með handofinni setu úr náttúrulegum pappa. 

Ljósmynd/Epal.is

Árið 1950 komu tveir glæsistólar á markaðinn. Annars vegar var það hinn heimsfrægi CH24 Y-stóll, eða óskabeinastóll sem danski húsgagnahönnuðurinn Hans J. Wagner hannaði fyrir Carl Hansen & Søn. Stóllinn er að margra mati einn fegursti stóll heims. Seta stólsins er handofin úr 120 metrum af sterkum pappírsþræði.

Ljósmynd/Epal.is

Sama ár hannaði Pierre Jeanneret hægindastólinn vinsæla Chandigarh. Stóllinn er blanda af við og reyr, en hann fæst í nokkrum litum og gefur sterkan svip á hvaða rými sem er. 

Ljósmynd/Nomadstore.is

Síðan þá hafa fjölmargir hönnuðir nýtt sér þá fallegu áferð sem ofinn reyr og pappír gefa húsgögnum, en þar á meðal má nefna Cuba stólinn eftir Morten Gøttler frá árinu 1997 og Nomad stólinn frá NORR11 eftir Kristian Sofus Hansen og Tommy Hyldahl frá árinu 2018.

Ljósmynd/Epal.is
Ljósmynd/Norr11.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál